Ómar og Jóhann framlengja í Grindavík

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Domino’s deildarlið Grindavíkur í körfubolta karla hefur náð að tryggja sér áfram starfskrafta tveggja lykilleikmanna, en þeir Jóhann Árni Ólafsson og Ómar Sævarsson framlengdu samninga sína við liðið á dögunum. Jóhann samdi við liðið til fimm ára en Ómar til þriggja ára. Frá þessu er greint á Karfan.is. Þar er jafnfram greint frá því að hugsanlega séu Grindvíkingar að missa unga og efnilega leikmenn til Bandaríkjanna vegna náms, þar ræðir um þá bræður Jón Axel og Ingva Guðmundssyni og Hinrik Guðbjartsson.