Slóvenin Tomislav Misura hefur samið við Grindavík til þriggja ára. Tomislav er 33 ára og hefur síðustu tvo tímabil verið leikmaður Beijing Baxy í Kína. Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun samningsins og með Tomislav á myndinni er Jónas Þórhallsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur og Rúnar Sigurjónsson formaður meistaraflokksráðs Grindavíkur.
Tomislav er sóknarmaður sem spilað hefur um víða veröld m.a. Kína og í Ástralíu auk heimalandsins, Slóveníu. Grindavík hefur góða reynslu á að því að ráða til sín leikmenn sem spilað hafa í Kína því einn ástsælasti leikmaður Grindavíkur, Eysteinn Hauksson, spilaði þar um tíma.
Við bjóðum Tomislav Misura velkomin til Grindavíkur.