KR – Grindavík í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Fyrsti leikur Grindavíkur og KR í úrslitum Íslandsmeistaratitilsins fer fram í kvöld klukkan 19:15.  Óhætt er að segja að þetta séu tvö bestu liðin á Íslandi í dag því KR tapaði bara einum leik í deildinni (gegn Grindavík) og okkar menn hafa verið á mikillri siglingu eftir áramót.

Forsala á leiknum er í DHL höllinni milli klukkan 12-13 og svo hefst almenn sala klukkan 17:00.  Stuðningur úr stúkunni er mjög mikilvægur og þvi ætla sem flestir að mæta enda hefur Grindavíkurliðinu gengið ágætlega í DHL höllinni og vonandi heldur það áfram.

Karfan.is hefur tekið saman tölfræði um liðin:

“Grindvíkingar hafa níu sinnum komist í úrslitin eftir að úrslitakeppnin var sett á árið 1984. Þeir hafa unnið titla í þrjú skipti af þessum níu frá upphafi sem gefur 33,3% árangur. Frá því best-of-5 fyrirkomulagið var sett á hefur Grindavík farið sjö sinnum í úrslit og unnið tvisvar eða síðastliðin tvö ár, sem gefur 28,5% árangur.

Aðra sögu er að segja af KR. Frá upphafi hefur KR farið sjö sinnum í úrslit og unnið fimm sinnum, eða náð 71,4% árangri. Síðan best-of-5 fyrirkomulagið var sett á hafa KR farið sex sinnum í úrslit og unnið fimm sinnum sem gefur 83,3% árangur.

Heimavöllurinn virðist skipta litlu máli þegar í úrslitin kemur því 56% leikja í úrslitum frá upphafi hafa unnist á heimavelli en 44% á útivelli. Eftir að best-of-5 fyrirkomulagið var sett á hafa 57% leikja unnist á heimavelli en 43% á útivelli.

Alls tíu sinnum hefur andstæðingi verið sópað út úr úrslitaviðureign og tólf sinnum hefur tapliðið náð að vinna einn leik. Alls sjö sinnum hefur úrslitaviðureign farið í oddaleik og í aðeins einni viðureign tókst útiliði að vinna oddaleik.

Þau lið sem hafa heimavallarréttinn hafa unnið meistaratitilinn í 20 þeim 30 viðureignum sem leiknar hafa verið. 10 sinnum hefur liðið sem ekki hefur haft heimavallarréttinn unnið titil.

21 sinni hefur liðið sem vinnur fyrsta leikinn í úrslitaviðureign endað með að vinna titilinn.

KR og Grindavík hafa tvisvar sinnum mæst í úrslitum, árin 2000 og 2009. Árið 2000 vann Grindavík fyrsta leikinn en KR rúllaði upp næstu þrem. Árið 2009 fóru liðin alla leið í oddaleik þar sem KR hafði yfirhöndina. KR er því 2-0 á móti Grindavík í úrslitum.

Þegar liðin mættust 2009 vannst enginn leikur með meiri mun en 13 stigum og meðalmunur liðanna var 8,2 stig í gegnum öll úrslitin. Þá var KR með gríðarlega vel mannað lið en með seiglunni og baráttu tókst Grindavík að þvinga oddaleik. KR vann 21 leik í deildarkeppninni það ár, líkt og þeir gerðu á þessari leiktíð.

Þessi sería er galopin að mínu mati. Fyrir úrslitakeppnina var við því búist að KR myndi rúlla yfir allt sem í vegi þeirra var en tölfræði þeirra í úrslitakeppninni gefur vitnisburð um að vörnin þeirra sé að slaka á. Grindvíkingar sendu skýr skilaboð út með slátrun þeirra á Njarðvíkingum í oddaleik liðanna um daginn. Grindvíkingar eru með vindinn í bakið og KR-ingar verða að vera tilbúnir í slaginn strax frá upphafi. Það þýðir ekkert að vera sofandi líkt og í fyrsta leik liðanna eftir jólafrí í janúar, þegar Grindavík vann sannfærandi sigur á KR í DHL höllinni. “