Eftir tap í kvöld er ljóst að það þarf oddaleik til að skera úr hverjir mæta KR í úrslitum þetta árið. Leikurinn í kvöld var jafn frá fyrstu mínútu og allt þar til 2 mínútur voru til leiksloka þegar heimamenn juku við forskot og endaði leikurinn með sigri Njarðvík 77-68
Til að gera langa sögu stutta þá átti Grindavík slakan leik í kvöld. Mikið um mistök, 20 tapaðir boltar, og bæði varnarleikur og sóknarleikurinn ekki nógu góður.
Við fáum því enn einn spennandi leikinn í þessari seríu og slegið verður upp í 5 leikinn á Skírdag. Ef okkar menn sýna sitt rétta andlit þá förum við áfram.
Myndir frá Skúla Siguðssyni á karfan.is þar sem myndin hér að ofan er fengin frá.