Actavis International mót Sundfélags Hafnarfjarðar var haldið um helgina .
Á mótinu var keppt í opnum flokkum sem þíðir að krakkarnir eru að keppa við fullorðna.
Keppt var í 50 m laug og er tímabilinu sem keppt er í 50 m laugum að ljúka. Okkar fólki var að ganga mjög vel á mótinu.
Erla Sif Arnardóttir vann til silfurverðlauna í 200 m bringusundi og náði lágmörkum fyrir ÍM 50 m og AMÍ.
Hún komst einnig í úrslit í 100 m bringusundi.
Sunneva Jóhannsdóttir komst í úrslit í 50 m flugsundi.
Agata Jóhannsdóttir ásamt Elísabetu Maríu Magnúsdóttur komust í úrslit í 50 m bringusundi.
Gil Fernanders Resende og Alexander Már Bjarnason voru varamenn í úrslitum í 100 m bringusundi.
Á mótinu voru allir keppendur UMFG að standa sig með prýði.