Þeir sem versluðu sér hlut í stóra kerfinu hjá Getraunaþjónustunni í Gula húsinu ávöxtuðu pund sitt vel því að 13 réttir komu á seðilinn sem gerður var þessa helgi, vinningurinn var 3,3 miljónir sem skiptast á 50 hluti eða 66 þúsund krónur á hlut, en hluturinn kostaði 3000 kr.
Hluthafar í kerfinu eru beðnir um að senda bankaupplýsingar og kennitölu á bjarki@thorfish.is eða hafa samband við Bjarka í síma 894-3134 svo hægt verði að borga út vinninginn.
Það verður jafnvel settur saman stór seðill um næstu helgi en það verður auglýst síðar.
Hér fyrir neðan má sjá vinningsseðilinn: