Tímabilið ekki búið hjá Daníel Leó og Stefáni

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Daníel Leó Grétarsson og Stefán Þór Pálsson hafa báðir verið valdir í U19 sem tekur þátt í undankeppni EM í Belgíu 8-16. október.

Af 18 manna hóp eru helmingur leikmanna í íslenskum liðum og því góður árangur að hafa tvo leikmenn úr Grindavíkurliðinu í þessum hóp.

Ísland mætir Frökkum 10. október, Belgum 12.okt og Norður Írlandi 15.október.