Toppslagur 1.deild kvenna fer fram á morgun á Grindavíkurvellir þegar stelpurnar taka á móti Fjölni. Liðin eru bæði með 26 stig eftir 11 umferðir. KR skaust fram úr liðunum á þriðjudaginn þannig að þessi leikur mjög mikilvægur fyrir stelpurnar.
Leikurinn hefst klukkan 19:00 og eru Grindvíkingar hvattir til að mæta og styðja við stelpurnar. Aðeins þrír leikir eru eftir hjá Grindavík í riðlinum og með sigri á morgun eru stelpurnar skrefi nær úrslitakeppninnar þar sem barist verður um sæti í Pepsi deildinni næsta sumar.