7 mörk í fyrri hálfleik

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík og Keflavík áttust við í 1.deild kvenna í gær.  Það er skemmst er frá því að segja að Grindavík sigraði örugglega 7-0.

Liðin eru á sitthvorum enda deildarinnar og það sýndi sig í leiknum.  Frábær fyrri hálfleikur hjá Grindavíkurstelpum skilaði þeim 7 mörkum yfir þegar þær gengu til klefa eftir 45. mínútur.

Virtust stelpurnar saddar eftir fyrri hálfleikinn því ekkert mark var skorað í seinni hálfleik.

Næsti leikur er sunnudaginn 28. júlí þegar þær mæta Fjarðabyggð á útivelli