Stelpurnar í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu taka á móti Völsung á morgun klukkan 13:30. Er þetta leikur í sjöundu umferð 1. deild kvenna.
Von er á skemmtilegum leik þar sem liðin eru bæði í toppbaráttunni og bæði lið hafa verið iðinn við markaskorun á tímabilinum, Grindavík með 26 mörk og Völsungur 20. Ekkert útileguveður er um helgina þannig að Grindvíkingar eru hvattir til að mæta á völlinn og styðja við bakið á stelpunum.