Stórsigur hjá stelpunum

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík sigraði Fjarðabyggð í 1.deildinni í gær.  

Nóg var af mörkunum í gær því Grindavík skoraði 6 slík á móti 1 marki gestanna.  Mörk Grindavíkur skoruðu Margrét Albertsdóttir (tvö), Anna Þórunn Guðmundsdóttir(tvö), Ágústa Jóna Heiðdal og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir.  Anna Þórunn er það með orðinn markahæst í B riðli ásamt Fanney frá Hetti með 4 mörk.

Staðan er frekar einkennileg í upphafi móts því taflan skiptist þannig að 5 lið erum með 6 stig (sum hafa spilað þrjá leiki) og þrjú með ekkert stig.  Næsti leikur Grindavíkur er gegn Hetti á föstudaginn.