Grindavík sigraði Ægir í 64. úrslitum Borgunarbikars karla. Lokatölur voru 4-3 fyrir Grindavík þar sem Stefán Pálsson, Juraj Grizelj og Daníel Leó Grétarsson skoruðu mörkin, Stefán skoraði tvö.
Uppfært:
Nú rétt í þessu var dregið í bikarnum. Grindavík mætir KR á útivelli 29 eða 30 maí.
Dregið verður í hádeginu í 32 liða úrslitin þar sem Pepsi deildar liðin eru ásamt BÍ/Bolungarvík, Víkingur R., Þróttur, Selfoss, Leiknir, Völsungur, Grindavík, Tindastóll, KV, Grótta, HK, Sindri, Hamar, Reynir S., Höttur, Magni, Ýmir, Þróttur Vogum, Álftanes og Ármann.