Grindavík mætir ÍBV á Hásteinsvelli í dag klukkan 16:00
ÍBV er í baráttu um Evrópusæti næsta sumar en öll þekkjum við stöðu Grindavíkur. Leikur þessara liða í fyrra varð sögulegur en með sigri í eyjum bjargaði Grindavík sér frá falli. Frábært væri að okkar menn enduðu tímabilið á svipuðum nótum og í fyrra, að halda sér upp í fjarlægur draumur en nokkrir sigrar í lokin væri gott veganesti í komandi vetur.
Leikur liðanna í fyrra á Hásteinsvelli endaði 2-0 þar sem Ólafur Örn Bjarnason og Magnús Björgvinsson skoruðu mörk Grindavíkur.
2010 sigraði Grindavík einnig en þá var það Hafþór Ægir Vilhjálmsson sem skoraði eina mark leiksins í miklum rokleik. Árin þar á undan sigruðu heimamenn.