Grindavík náði ekki að minnka muninn í botnbaráttuni þegar þeir mættu ÍA á Akranesi í dag.
Byrjunarlið Grindavíkur var skipað eftirfarandi leikmönnum í c.a. þessari uppstillingu:
Óskar
Loic – Ólafur Örn – Mikael – Ray
Markó – Björn Berg
Magnús Óii Baldur
Ameobi
Á bekknum voru Alexander, Alex, Ægir, Matthías, Scotty, Pape og Hafþór og komu þrír síðastnefndu inn á.
Eins og í leiknum gegn Selfoss var Grindavík góðir fyrsta korterið og líklegir til að setja fyrsta markið í leikinn. En það var hinsvegar elsti maðurinn á vellinum sem gerði þá á 22. mínútu þegar Dean Martin skoraði eftir að okkar menn náðu ekki að hreinsa almennilega frá eftir sendingu af hægri kantinum.
Staðan var 1-0 í hálfleik sem var sanngjarnt þar sem heimamenn voru heilt yfir betri fram að hléi.
Grindavík átti hinsvegar alveg seinni hálfleikinn og fór leikurinn að mestu fram á vallarhelming skagamanna. Illa gekk hinsvegar að komast í nægilega gott færi, hávaxið hafsentapar ÍA átti ekki í vandræðum með háu boltana. Í einni af fáum sóknum heimamanna varði Óskar gott skot en ÍA náðu frákastinu og Garðar Bergman Gunnlaugsson skoraði og staðan því orðin 2-0.
Mark Grindavíkur lá hinsvegar í loftinu og ótrulegt að boltinn komst ekki inn fyrir línuna í nokkrum fínum færum. Það var ekki fyrr en á 88. mínútu sem Scotty braut ísinn og skoraði beint úr aukaspyrnu.
2-1 var því lokastaðan í leik þar sem 1 stig hefði verið sanngjarnara. Leikmenn Grindavíkur eiga hrós skilið fyrir frammistöðu sína í kvöld og þá sérstaklega í seinni hálfleik. Barist var fyrir hverjum bolta og gáfu þeir allt sitt í leikinn. Ef þeir halda áfram þessari spilamennsku þá er mótið alls ekki búið. Ef það dugar ekki þá kveðja þeir allavega deildina með reisn og Grindavík til sóma.