Í hádeginu var dregið í 4 liða úrslit Borgunarbikarsins. Grindavík kom upp úr pottinum á undan KR og fær því Íslands- og bikarmeistarana í heimsókn 2.ágúst.
Leikurinn gæti hinsvegar eitthvað færst til en það ræðst á gengi KR í Evrópukeppninni. Hinn leikurinn fer fram í Garðabæ þar sem Stjarnan tekur á móti Þrótti.
Það lið sem ætlar sér að vinna bikarinn í ár þarf að vinna besta lið landsins, KR, og því jákvætt að takast á við það verkefni á heimavelli í Grindavík frekar en á Laugardalsvellinum.