Suðurstrandavegurinn hefur reynst okkur gjöfugur síðustu mánuði og verður vonandi áframhald á því í kvöld þegar Grindavík mætir Selfoss í fimmtu umferð Pepsi deildar karla. Rútan fer klukkan 17:30 frá Bryggjunni.
Liðin hafa byrjað sumarið á sitt hvoran mátann þar sem Selfoss hefur sigrað tvo leiki en við vitum öll hvað hefur gengið á hjá Grindavík. Það er því komið að fyrsta sigurleik Grindavíkur í Pepsi deildinni og landast hann með því að liðið spili báða hálfleikina vel og við stuðningsmenn styðjum á bak við þá.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Selfossvelli.