Grindavík hefur oft spilað einn af sínum síðustu æfingarleikjum fyrir Íslandsmótið á gamla aðalvellinum 1.maí. Árið í ár er engin undantekning því Grindavík mætir Víking á morgun klukkan 11:00
Liðið er að taka á sig lokamynd fyrir tímabilið og því forvitnilegt að sjá hvernig Guðjón stillir upp liðinu á morgun. Eitthvað er um meiðsli og er t.d. Alexander Magnússon að jafna sig eftir speglun á hné.
Það er fín spá fyrir morgundaginn og því upplagt að kíkja á leik áður en farið er í kaffi hjá Verkalýðsfélagi Grindavíkur.