Stelpurnar unnu sinn fyrsta leik í sumar þegar þær lögðu Aftureldingu 2-1 í gær
Leikurinn var í liður í 12. umferð Pepsi deild kvenna og jafnfram kveðjuleikur hjá 4 leikmönnum sem hverfa á brott til Bandaríkjana en það eru þær Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Margrét Albertsdóttir og Kristín Karlsdóttir.
Grindavík komst yfir á 25. mínútu þegar Shaneka skoraði eftir fína stungusendingu. Strax í næstu sókn jafnaði Afturelding eftir mjög umdeilt mark. Brotið var á Emmu Higgins þannig að hún missti boltann í markið. Shaneka skoraði svo sigurmarkið þegar stutt var eftir af leiknum eftir misstök í vörn gestanna.
Sigurinn er gríðarlega mikilvægur, bæði fyrir móralinn og stigatöfluna. Það er aðeins tvö stig í næsta lið og 6 stig í sæti í efstu deild að ári. Grindavík á svo eftir leiki við liðin í næstu sætum(heimaleik við Þrótt og útileik við KR)