Meistaraflokkar í körfuknattleik spiluðu um helgina í bikar og deild og unnust leikirnir. Í gærkveldi spilaði kvennaliðið við KR á útivelli og sigraði 79-69. Karlaliðið lagði Val 103-76 í Powerade bikarnum og ÍG sigraði Vængi Júpiters 95-81 í sömu keppni.
Sigur Grindavíkur á KR var kærkomin þar sem þetta var fyrsti útisigurinn í deildinni. Auk þess færðist Grindavíkurliðið í annað sæti því á sama tíma sigraði Keflavík Snæfell sem var í öðru sætinu fyrir umferðina.
Stigahæstar í kvöld voru Pálina (22), María Ben (22) og Lauren (18).
Umfjöllun um leikinn á karfan.is
Myndir frá leiknum má sjá á visir.is og á karfan.is
Grindavík er komið í 16 liða úrslit Powerade bikarsins eftir sigur á Val í gær. Lokatölur voru 103-76. Jafnt var til að byrja með en Grindavíkurliðið jók smá saman forystuna eftir fyrsta leikhluta og var sigurinn aldrei í hættu.
Á laugardaginn komst annað lið í 16 liða úrslit Powerade bikar karla. ÍG lagði þá Væni Júpiters. Morten Þór Szmiedowicz átti þar stórleik með 28 stig og 18 fráköst