Grindavík sigraði Njarðvík í Lengjubikarnum í gær 84-83 og eru því komnir í úrslitakeppnina sem fram fer um helgina.
Leikurinn í gær var spennandi frá fyrstu mínútu en heimamenn voru alltaf skrefinu á undan. Það var hinsvegar á síðustu mínútunum sem okkar menn jöfnuðu og komust yfir og fór Þorleifur Ólafsson þar fremstur í flokki með 5 síðustu stig leiksins.
Jóhann Árni Ólafsson var stigahæstur með 19 stig. Sigurður Gunnar Þorsteinsson með 15 stig og 20 framlagsstig ásamt Ólafi Ólafssyni sem hefur átt mjög góða leiki í mótinu með 17.6 framlagsstig að meðaltali. Sigurður Gunnar Þorsteinsson efstur með 20.9 framlagsstig að meðaltali.
Grindavík mætir KR á föstudaginn klukkan 20:00 í Njarðvík og má þar búast við frábærum leik.
Mynd hér að ofan er frá karfan.is þar sem flott myndasafn úr leiknum er að finna.