Jón Halldór Eðvaldsson tekur við kvennaliðinu

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Kvennaráð körfuknattleiksdeildar UMFG hefur haft hraðar hendur eftir tímabilið og tryggt sér þjónustu Jón Halldórs Eðvaldssonar sem þjálfara á komandi tímabili.

Jón er margreyndur þjálfari sem gerði Keflavík að margföldum Íslandsmeisturum í kvennaflokki, þjálfari yngri landsliða og hefur aðstoðað Sigurð Ingimundarson síðustu tímabil.

Hér að ofan má sjá Jón og Lindu, fyrir hönd kvennaráðs, skrifa undir samninginn.

Sjá frétt á karfan.is

Við bjóðum Jonna velkomin til starfa.