Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir frá því Grindavík varð Íslandsmeistari fyrir rúmlega ári síðan. Úrslitaviðureignn byrjar á morgun.
Fyrsti leikur er að sjálfsögðu í Grindavík þar sem við erum ríkjandi deildarmeistarar. Grindavík hefur ekki tapað heimaleik í úrslitakeppninni hingað til og ætla sér sigur á morgun. Búast má við því að íþróttahúsið verði þéttskipað og upphitun verður í Salthúsinu fyrir leikinn.
Líkt og í undanúrslitum þarf að vinna 3 leiki til að standa uppi sem Íslandsmeistari. Fyrsti leikurinn er á morgun, annar leikurinn í Garðabæ 19.apríl, þriðji í Grindavík 22.apríl. Ef þessir leikir duga ekki til þá fer fjórði leikurinn fram 25.apríl í Garðabæ og ef allt verður ennþá í járnum þá verður hreinn úrslitaleikur 28.apríl.