Grindavík er komið í undanúrslit í Lengjubikarnum eftir stórsigur á Keflavík í kvöld 116-81
Leikurinn byrjaði frekar rólega þar sem bæði liðin gerðu mörg mistök. Okkar menn rifu sig hinsvegar fljótlega í gang og tóku forystu. Keflavík fylgdi á eftir var jafn með liðum fram í miðjan annan leikhluta. Tók þá Grindavík aftur á skarið og leiddu með 11 stigum í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var okkar manna þar sem þeir juku bilið á milli liðanna jafnt og þétt. Í fjórða leikhluta fengu reynsluminni leikmenn beggja liða að spreyta sig og áttu þeir allir fína spretti.
Frábær þriggja stiga nýting lagði grunninn að sigrinum í kvöld. 19 af 29 skotum fóru ofan í fyrir utan þriggja stiga línuna eða 66% nýting! Til samanburðar var Grindavík með 55% nýtingu i tveggja stiga skotum.
Hjá Grindavík var Sammy Zeglinski stigahæstur 33 stig, einu stigi meira en Aaron Broussard, en Sammy var einnig með 11 stoðsendingar og 5 fráköst.
Undanúrslitin fara fram næstkomandi föstudagskvöld í Stykkishólmi og úrslitaleikurinn daginn eftir á sama stað. Grindavík og Snæfell hafa tryggt sér sæti.