Grindavík mætti ofjörlum sínum í Dominosdeildinni í gær þegar þær mættu Snæfelli í Stykkishólmi.
Snæfell var fyrir leikinn ósigrað í fyrstu þremur leikjum deildarinnar og eru því 4-0 eftir leikinn í gær. Lokatölur voru 86-55.
Petrúnella Skúladóttir átti stórleik sem því miður dugði ekki. Hún var með 31 stig og 11 fráköst. Þegar staðan var 51-38 í þriðja leikhluta var hún búin að skora 27 stig af þessum 38.
Harpa Rakel Hallgrímsdóttir kom henni næst með 8 stig og 7 fráköst, einu færra en systir henna Helga.
Næsti leikur hjá stelpunum er undir lok mánaðarins, 31.október, þegar þær mæta hinu liðinu án sigurs, Fjölni í Grafarvogi.