Grindavík lagði Keflavík í keppni meistara síðasta tímabils og eru því réttkrýndir meistarar meistaranna.
Leikurinn var fjörlegur þar sem Grindavík tók yfirhöndina strax á fyrstu mínútunum. Keflvíkingar minnkuðu þó muninn og var jafnt með liðunum mest allan leikinn. Það var þriðji leikhluti sem skar úr á milli liðanna en í þeim fengu gestirnir nokkur tæknivíti á sig dæmd og okkar menn gengu á lagið. Undir lokinn pressuðu Keflvíkingar en Grindavík spilaði skynsamlega úr því og hélt haus.
Stigahæstur hjá Grindavík var Aaron Broussard með 36 stig, 7 fráköst og 3 stoðsendingar. Er þarna á ferðinni virkilega góður leikmaður sem verður skemmtilegt að fylgjast með í vetur. Sigurður Gunnar Þorsteinsson var einnig öflugur með 21 stig sem komu flest í fyrri hálfleik. Sigurður kemur vel undan sumri, sem fór í ferðalög með landsliðinu.
Leikhlutarnir fór þannig:
1.leikhluti | 26-23 |
2.leikhluti | 16-18 |
3.leikhluti | 28-15 |
4.leikhluti | 22-27 |
Lokatölur | 92-83 |
Næsti leikur er fyrsti leikurinn í deildinni þar sem Grindavík mætir aftur Keflavík en í þetta skipti á þeirra heimavelli. Leikurinn er 8.október
Umfjöllun á karfan.is
Myndir frá Þorsteini Gunnari
Myndir frá vf.is á karfan.is
Mynd hér að ofan tók Hilmar fyrir vf.is