Nokkrir Grindvíkingar eru á leiðinni til Svíþjóðar á Norðurlandamótið í körfubolta yngri landsliða.
Í U-18 liði kvenna er Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir og núverandi leikmaður Njarðvíkur Andrea Björt Ólafsdóttir.
Leikir U-18 kvenna verða eftirfarandi:
Ísland-Danmörk
Hilmir Kristjánsson og Jón Axel Guðmundsson eru í U-16 liðinu og er leikjaplanið svona hjá þeim:
Ísland-Danmörk
Efnilegustu dómarar landsins taka einnig þátt og mun því Sigurbaldur Frímannsson fara ásamt fjórum öðrum dómurum og sjálfur forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, Bryndís Gunnlaugsdóttir, er fararstjóri íslenska hópsins.
Listi yfir aðra leikmenn og fylgdarliðs íslensku landsliðanna má sjá á kki.is en karfan.is sendir einnig sína fulltrúa og munu fjalla ýtarlega um mótið á karfan.is