Helgi Jónas hættir

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Helgi Jónas Guðfinnsson tilkynnti stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í dag að hann óski eftir að hætta störfum með liðið sökum anna í vinnu sinni.

Aðilar skilja í mesta bróðerni en gífurleg ánægja var með störf Helga og árangurinn á þessu tímabili auðvitað hreint út sagt stórkostlegur þar sem sjálfur Íslandsmeistaratitillinn var rúsínan í pylsuendanum.

Stjórn kkd.umfg óskar Helga Jónasi alls hins besta í framtíðinni og hann mun örugglega snúa aftur einhvern tíma síðar.

Engin ákvörðun hefur verið tekin um eftirmann Helga.

Stjórn kkd.umfg.