Fjórir Grindvíkingar fóru í morgun áleiðis til Kína með karlalandsliðinu í körfubolta.
Kínverska körfuknattleikssambandið bauð því íslenska til sín þar sem liðin munu mætast í tveimur leikjum. Þann fyrsta 9.september í Xuchang City og þann seinni 11.september í Loudi City.
Kínverjar telja að íslenska landsliðið sé áþekkt þeim mótherjum sem þeir mæta á Asíuleikunum sem fram fara seinna í september.
Í landsliðinu eru Ólafur Ólafsson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Aðstoðarþjálfari er Helgi Jónas Guðfinnsson og farastjóri Eyjólfur Þór Guðlaugsson.