Grindavík komst á topp Iceland Express deild karla með sigri á KFÍ í kvöld
Grindavík byrjaði betur í leiknum en heimamenn tóku við sér og tóku yfirhöndina í miðjum leiknum og voru yfir í hálfleik. Síðasti leikhlutinn var hinsvegar góður hjá okkur mönnum og endaði því leikurinn með sigri Grindavíkur 74-64.
Stigahæstu menn voru Ryan Pettinella með 17 stig og Páll Axel með 16 stig og 4 stoðsendingar og fráköst.
Helgi Jónas spilaði rúmar 6 mínútur í leiknum en önnur gömul keppa tók einnig fram skónna í kvöld, Bergur Hinriksson kom inn á og verður gaman að sjá hvort hann eigi ekki ennþá nokkra leiki inni.
Á sama tíma spiluðu Keflavík og Snæfell(sem var fyrir leikinn í efsta sæti) í Keflavík þar sem heimamenn sigruðu nokkuð örugglega. Grindavík er því komið í efsta sæti við hlið Snæfells með 22 stig eftir 13 umferðir.