Á morgun, fimmtudaginn 20.mars, fer fram fyrsti leikur Grindavíkur í úrslitakeppninni. Grindavík mætir Þór frá Þorlákshöfn í 8 liða úrslitum.
Eins og allir vita er Grindavík Íslandsmeistari síðustu tveggja ára og markið sett á þrennuna.
Leikdagar eru eftirfarandi (allir leikir klukkan 19:15):
Fimmtudaginn 20.03.2014 | Grindavík | Þór Þorlákshöfn |
Sunnudaginn 23.03.2014 | Þór Þorlákshöfn | Grindavík |
Fimmtudaginn 27.03.2014 | Grindavík | Þór Þorlákshöfn |
Og ef ekki næst niðurstaða í einvíginu í þessum þremur leikjum þá verður spilað þangað til annað lið nær þremur sigrum
Sunnudaginn 30.03.2014 | Þór Þorlákshöfn | Grindavík |
Fimmtudaginn 03.04.2014 | Grindavík | Þór Þorlákshöfn |