Nú styttist í fyrsta leikinn. Fjölmiðlarnir eru iðnir við að taka saman tölfræði fyrir úrslitakeppnina og þar er margt áhugavert að finna.
Á karfan.is hefur Höður Tulinius tekið Four Factors upplýsingar þar sem kemur m.a. fram að
“Grindavík er besta varnarlið deildarinnar skv. FourFactors og heldur andstæðingum sínum í 94,5 stigum per 100 sóknir að meðaltali. Þór spilar hraðan bolta eða 87,7 í pace en Grindavík er alls ekkert illa við það heldur þannig að liðin passa hvort öðru hvað það varðar”
Vísir.is hefur fengið spekinga til að spá í rimmuna og spá þeir allir Grindavík sigri, sjá nánar á visir.is
Þar er einnig tekið saman “vissir þú” tölfræði
“… Grindvíkingar hafa unnið sex seríur í röð í úrslitakeppni eða allar síðan þeir töpuðu fyrir Stjörnunni í átta liða úrslitunum 2011. Grindavík hefur komist í 1-0 í öllum seríunum og í 2-0 í fjórum af sex. Ein seríanna var á móti Þór úr Þorlákshöfn en liðin mættust í lokaúrslitunum árið 2012.
… Ragnar Nathanaelsson tók 25 fráköst í sigri Þórs í Grindavík en engum tókst að taka fleiri fráköst í einum leik í vetur. Ragnar var með 18,0 stig og 18,5 fráköst að meðaltali í leikjunum á móti Grindavík.”