Grindavíkurstelpur skelltu grönnum sínum í Keflavík með 67 stigum gegn 58. Þetta var forleikurinn að bikarúrslitaleik liðanna í Laugardalshöll aðra helgi. Því ber hins vegar að halda til haga að í lið Keflavíkur vantaði nokkra lykilmenn, þar á meðal hina öflugu Carmen Tyson-Thomas.
Fyrri hálfleikur var í járnum en Grindavík gerði út um leikinn með góðum spretti í þriðja leikhluta þar sem Grindavík skoraði 26 stig gegn 16 stigum Keflvíkinga.
Grindavík fór aftur upp í 3. sæti með sigrinum en Keflavík er áfram í 2. sæti.