Grindavík komst í annað sæti í sinum riðli Lengjubikarins eftir 1-0 sigur á Haukum í gær.
Leikurinn fór fram í rigningu og roki á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær.
Lið Grindavíkur: Óskar – Matthías, Jamie, Ólafur Örn, Alexander – Jóhann, McShane, Salem – Magnús, Michel, Scotty. Inn á komu Guðmundur Bjarna, Óli Baldur, Guðmundur Egill og Hákon.
Mark Grindavíkur skoraði Óli Baldur á 65. mínútu og var það eina mark leiksins.
Grindavík er því komið í annað sæti með 12 stig. Síðasti leikurinn í riðlinum er annað kvöld klukkan 19:00 gegn Fylki í Árbænum