Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt landsliðshóp sinn sem mætir Úkraníu 24. mars næstkomandi.
Jósef Kristinn Jósefsson er í hópnum og er óskandi að hann haldi sæti sínu fram yfir EM í sumar. Athygli vekur að besti markvörðurinn í þessum aldurshópi (og jafnvel eldri), Óskar Pétursson, er ekki einn af tveimur markvörðum liðsins þrátt fyrir að hafa staðið sig mjög vel í síðustu leikjum í Lengjubikar og Fótbolti.net mótinu sem og á síðustu leiktíð.
Leikurinn er fyrri æfingarleikur liðsins en seinni leikurinn er gegn Englandi í Preston 28.mars.
Hópurinn sem mætir Úkraníu:
Markmenn:
Haraldur Björnsson – Valur
Arnar Darri Pétursson – SönderjyskE
Varnarmenn:
Hólmar Örn Eyjólfsson – West Ham
Hjörtur Logi Valgarðsson – Gautaborg
Skúli Jón Friðgeirsson – KR
Jósef Kristinn Jósefsson – Burgas
Elfar Freyr Helgason – Breiðablik
Guðmundur Reynir Gunnarsson – KR
Finnur Orri Margeirsson – Breiðablik
Miðjumenn:
Bjarni Þór Viðarsson – Mechelen
Andrés Már Jóhannesson – Fylkir
Almarr Ormarsson – Fram
Guðlaugur Victor Pálsson – Hibernian
Þórarinn Ingi Valdimarsson – ÍBV
Björn Daníel Sverrisson – FH
Sóknarmenn:
Kristinn Steindórsson – Breiðablik
Björn Bergmann Sigurðarson – Lilleström
Aron Jóhannsson – AGF