Unglingadómaranámskeið 2011

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Unglingadómaranámskeið á vegum KSÍ verður haldið  í Gulahúsinu Grindavík fimmtudaginn 13 jan kl. 17:30

 

Um að ræða tveggja og hálfs  tíma fyrirlestur og próf viku seinna.   Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.

Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Námskeiðið er ókeypis.