Stefna knattspyrnudeildar Grindavíkur í málum jafnréttis kynja, kynþátta, fordóma og eineltis
Það er stefna knattspyrnudeildar Grindavíkur í að vinna gegn því að fordómar, einelti og hvers kyns ójafnrétti þrífist innan deildarinnar.
Jafnrétti kynja og kynþátta
Allir einstaklingar innan knattspyrnudeildar Grindavíkur skulu eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kynferði eða kynþætti. Til að stuðla að jafnrétti kynja og kynþátta leggur knattspyrnudeild Grindavíkur áherslu á:
- Að veita báðum kynjum tækifæri á að æfa jafn mikið og jafn oft og gera engan greinarmun á drengja- og stúlknaflokkum við útdeilingu æfingatíma.
- Að hafa vel menntaða og hæfa þjálfara í öllum flokkum. Gerðar eru sömu ráðningarkröfur til þjálfara drengja- og stúlknaflokka. Sömu laun eru greidd fyrir sambærilega vinnu karla og kvennaflokka.
- Að jafnréttissjónarmiða sé gætt í hvívetna í starfi deildarinnar og að hvers kyns kynjaeða kynþáttamismunum verði ekki liðin.
- Að iðkendur, félagsmenn og starfsmenn hafi ekki uppi orð eða athafnir sem líta má á sem kynja- eða kynþáttamisrétti gagnvart öðrum, hvort sem um ræðir einstaklinga eða hópa innan eða utan félagsins. Áhersla er lögð á að iðkendur og aðrir félagsmenn geri ekki athugasemdir við litarhátt, talsmáta eða annað í fari iðkenda, ættingja þeirra eða keppinauta sem skilja má sem særandi athugasemd um uppruna þeirra. 67
- Að iðkendur og aðrir félagsmenn séu meðvitaðir um menningarmun, hugsanlega vanþekkingu innflytjenda á íslenskum aðstæðum og úrræðaleysi gagnvart þeim.
- Að iðkendur og aðrir félagsmenn leggi sig fram um að aðstoða innflytjendur við aðlögun að félagsstarfi knattspyrnudeildar.
- Stefnt skal að því að jafnræði sé milli karla og kvenna í knattsp.d Grindavíkur.
- Þess skal gætt að karla- og kvennaflokkar félagsins fái tækifæri til fjáraflana sem taki mið af þeim verkefnum sem viðkomandi flokkur stefnir að.
Fordómar
Fordómar eru þegar einhver er áreittur, útilokaður, sniðgengin(n) eða mismunað vegna útlits, uppruna, kynþáttar, litarháttar, kynferðis, kynhneigðar, skoðana, trúar, fötlunar, efnahags eða annarra aðstæðna. Til að koma í veg fyrir fordóma hvetur knattsp.d Grindavíkur sína iðkendur til að:
- Taka ekki undir með þeim sem lætur í ljós fordóma.
- Biðja gerandann um að setja sig í spor þess sem hann fordæmir.
- Fræða gerandann.
- Koma fram við aðra eins og við viljum að það sé komið fram við okkur.
- Muna að þeir standa ekki einir ef þeir verða sjálfir fyrir fordómum. Best er að reyna að finna einhvern sem stendur með sér, veitir stuðning og hægt er að tala við. Það geta verið vinir, foreldrar eða þjálfarinn, einhver sem má treysta.
Einelti
Einelti er að ofsækja einhvern með endurtekinni stríðni, illkvittni og uppnefnum eða með ógnandi, árásargjarnri framkomu og útilokun frá félagsskap. Til að koma í veg fyrir einelti hvetur knattsp.d Grindavíkur sína iðkendur til að:
- Taka ekki þátt í eineltinu.
- Biðja gerandann að setja sig í spor þess sem hann leggur í einelti. 68
- Sýna þeim sem verður fyrir eineltinu stuðning með því að ganga til liðs við hann/hana og mótmæla svona framkomu.
- Koma fram við aðra eins og við viljum að það sé komið fram við okkur.
- Muna að aðgerðarleysi frammi fyrir einelti má túlka þannig að eineltið sé samþykkt.
- Muna að þeir standa ekki einir ef þeir verða sjálfir fyrir einelti. Best er að reyna að finna einhvern sem stendur með sér, veitir stuðning og hægt er að tala við. Það geta verið vinir, foreldrar eða þjálfarinn, einhver sem má treysta.
Samþykkt á stjórnarfundi knattspyrnudeildar Grindavíkur í desember 2009