Niðurstaða aðalfundar körfuknattleiksdeildar

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar UMFG fór fram í Gjánni í gær. Fundurinn var afar vel sóttur og var ný stjórn kosin til starfa. Óli Björn Björgvinsson var einn í framboði til formanns og var kjörinn með lófataki ásamt stjórn sem er fullskipuð.

Fyrri stjórn mun þó starfa áfram samhliða nýrri út tímabilið og fylgja liðunum okkar eftir í komandi úrslitakeppnum, en formaður las upp eftirfarandi tillögu í lok fundar sem var samþykkt samhljóða:

„Lagt er til að nýkjörin stjórn og fráfarandi stjórn starfi samhliða út tímabilið með skýrri verkaskiptingu, þannig að fráfarandi stjórn annist áfram utanumhald vegna úrslitakeppni og lokahófs, en ný stjórn hefji undirbúning fyrir næsta tímabil. Stjórnirnar skulu hafa með sér gott samráð á þessu tímabili. Umboð fráfarandi stjórnar fellur niður tveimur vikum eftir síðasta leik tímabilsins.“

Fráfarandi stjórn var að lokum þakkað fyrir frábært starf, ótrúlega þrautseigju og hrósað fyrir þeirra störf.

Stjórn skipa nú:

Óli Björn Björgvinsson – Formaður
Erna Rún Magnúsdóttir
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Margrét Rut Reynisdóttir
Friðrik Þór Sigurðsson
Ástþór Ingi Gestsson
Egill Birgisson

Varamenn í stjórn verða:

Bjarni Már Svavarsson
Lórenz Óli Ólason
Birgir Emil Jóhann Egilsson
Aron Óskarsson
Íris Huld Róbertsdóttir
Hulda Karen Bessadóttir
Kristján Ásgeirsson