Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson hefur yfirgefið norska knattspyrnuliðið Aalesunds FK og gert tveggja ára samning við enska knattspyrnufélagið Blackpool FC sem leikur í ensku C-deildinni.
Daníel, hefur spilað með Álasund síðan 2015 og leikið yfir 100 leiki með liðinu á þessum fimm keppnistímabilum. Hann lék sinn fyrsta A-landsleik í byrjun þessa árs þegar Ísland sigraði Kanada 1:0 og að auki hefur Daníel leikið sex leiki með U21 og tíu leiki með U19 landsliðum Íslands.
Neil Critchley, yfirþjálfari Blackpool, segir að félagið hafi lagt sig fram við að finna rétta leikmanninn og sú reynsla sem fylgi Grindvíkingnum komi til með að styrkja lið Blackpool en Daníel er öflugur varnarmaður og Blackpool er sem stendur í fjórða neðsta sæti deildarinnar.
„Hann kemur með reynslu úr keppni með félagsliðum og landsliðum. Hann lítur á komu sína til Englands og að ganga í raðir Blackpool sem næsta skref á ferli sínum,“ segir Critchley á vef Blackpool FC. „Okkur hlakkar til að vinna með honum, hjálpa honum að falla inn í hópinn og bjóðum hann velkominn í Blackpool-fjölskylduna,“ er enn fremur haft eftir Neil Critchley.