Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Grindavíkur auglýsir eftir yfirþjálfara yngri flokka félagsins. Um hlutastarf er að ræða.
Helstu verkefni eru:
- Ráðning og samskipti við þjálfara
- Samskipti við KKÍ
- Umsjón með gæðum þjálfunnar og eftirfylgni með handbók unglingaráðs
- Unglingaráð leitar eftir metnaðarfullum aðila með reynslu af þjálfun og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsókn ásamt upplýsingum um reynslu og fyrri störf skal skila í síðasta lagi fimmtudaginn 12.maí á netfangið ka@grindavik.is
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Kjartan Fr. Adólfsson formaður unglingaráðs í síma 849-7535