Undanúrslit í Geysis bikarnum í körfuknattleik verða á morgun, miðvikuudaginn 12. febrúar í Laugardagshöllinni. Lið Grindavíkur mætir þar liði Fjölnis kl. 17:30. Það lið sem vinnur kemst áfram í úrslitaleikinn á laugardaginn kemur, 15. febrúar.
Grindvíkingar eru hvattir til að kaupa miðana sína af meðfylgjandi tengli hér. Þá er líka hægt að kaupa miða á gamla mátann hjá Lindu í Palóma en þá þarf að mæta með pening.
Fjölmennum í höllina og styðjum strákana til sigurs!