Björn Lúkas vann silfur á Reykjavíkurleikum

Ungmennafélag Grindavíkur Taekwondo

Þjálfarar deildarinnar röðuðu sér í fyrstu þrjú sætin í -80 kg  svartbeltisflokki fullorðinna á Reykjavík International games um helgina.

Þjálfarar deildarinnar röðuðu sér í fyrstu þrjú sætin í sterkasta flokknum á Reykjavíkvíkurleikunum sem haldnir voru um helgina.

Björn Lúkas sýndi frábæra frammistöðu þar sem hann sigraði reynslumikla keppendur. Fyrsti bardaginn hans Björns var sérstaklega spennandi þar sem hann keppti við reynslumikinn keppanda með yfir 20 ára keppnisreynslu og staðan var jöfn eftir þrjár lotur. Bardaginn fór í gullstig sem þýðir að sá sem er fyrr til að skora stig sigrar bardagann. Björn Lúkas gerði sér lítið fyrir skorað stig með snúningskróksparki í höfuð sem gefur 4. stig og vann því gullstigslotuna og bardagann örugglega. Björn Lúkas mætti Kristmundi Gíslasyni í úrslitabardaganum og eftir frábæran bardaga stóð Kristumundur uppi sem sigurvegari flokksins og var  einnig valinn keppandi mótsins. Kristmundur og Lúkas eru nýbyrjaðir að keppa í fullorðinsflokki þ.e. 18 ára og eldri og er þetta því alveg magnaður árangur hjá þeim.

Innilega til hamingju með árangurinn strákar.

 

Þess má geta að Gísli Þráinn Þorsteinsson uppalinn grindvíkingur átti frábæran dag og sigraði sinn flokk með frábærum tilburðum. Gísla hefur farið mikið fram undanfarið og sýndi fram á glæsilegan árangur. Gísli er nýfluttur í höfuðborgina og keppti því fyrir Ármann í fyrsta sinn en við erum að sjálfsögðu gríðlega stolt af hans árangri.