Ísland – Eistland á Grindavíkurvelli

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Ísland og Eistland mætast í vináttuleik hjá U-19 landsliðum karla í knattspyrnu á Grindavíkurvelli næstkomandi sunnudag klukkan 16:00.

Liðin mættust einnig í dag þar sem Ísland bar sigur af hólmi 4-0 og skoraði Gunnar Þorsteinsson, fyrrum leikmaður Grindavíkur, eitt marka Íslands á 51. mínútu leiksins.