Grindavík auglýsir eftir körfuknattleiksþjálfurum til starfa fyrir yngri flokka félagsins

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Körfubolti

Grindavík auglýsir eftir körfuknattleiksþjálfurum til starfa fyrir yngri flokka félagsins. Leitað er af einstaklingum sem hafa áhuga á körfuknattleiksþjálfun barna og unglinga.

Starfssvið:

Körfuknattleiksþjálfun hjá yngri flokkum Grindavíkur

Umsjón með æfingum og leikjum og samskiptum við foreldra / forráðamenn

Menntun og hæfni:

Umsækjandi þarf að hafa mikinn áhuga á að vinna með börnum og uppbyggingu á starfinu

Frumkvæði og góða samskiptahæfileika

Þjálfaramenntun sem tengist greininni eða vilji til að sækja sér slíka menntun (félagið greiðir námskeiðskostnað)

Íþróttamenntun kostur (ekki skilyrði)

Áhugasamir umsækjendur eru beðnir um að senda tölvupóst á johannao@grindavik.is. 

Allar nánari upplýsingar veitir Jóhann Árni yfirþjálfari í síma 837-7326