Jón Ólafur Daníelsson hefur tekið við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Grindavík í knattspyrnu og mun stýra liðinu í Lengjudeildinni á næsta keppnistímabili. Jón Ólafur tekur við þjálfun liðsins af Ray Anthony Jónssyni sem lét af störfum sem þjálfari liðsins í vetur. Grindavík fangaði sigri í 2. deild kvenna í haust og leikur því í Lengjudeildinni á næstu leiktíð. Ekki þarf …
Mirza Hasecic semur við Grindavík
Grindavík hefur gert samning við Mirza Hasecic sem mun leika með Grindavík út tímabilið 2022. Mirza er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið bakvarðarstöður, á væng eða á miðju. Mirza er 23 ára gamall en var frá allt síðasta keppnistímabil vegna meiðsla. Hann er búsettur hér í Grindavík en er uppalinn hjá Sindra á Höfn í Hornafirði og hefur alls leikið …
„Reksturinn á deildinni orðin eins og hjá fyrirtæki“
Ásgerður Karlsdóttir hætti í stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur núna í vor eftir að hafa setið í stjórn deildarinnar í hartnær tvo áratugi. Ásgerður hefur haldið þétt utan um budduna hjá deildinni síðustu ár með farsælum hætti. Sonur hennar, Jens Valgeir Óskarsson, leikur með meistaraflokki karla, og því mun fylgast áfram grannt með starfinu og liðinu næstu árin. „Ég byrjaði í stjórn …
„Ætlum okkur stóra hluti“
Kæru Grindvíkingar! Það er búið að taka mig smá tíma að koma mér í sætið til að taka pennann í hönd og rita niður formannspistilinn þetta tímabilið. Það er einhvernveginn allt svo skrítið á þessum margnefndu covid tímum, og ekkert í takt við neitt eins og maður er vanur. Á þessum tíma fyrir ári var körfuboltinn á fullu, allt skýrt …
Emma Fanndal skrifar undir sinn fyrsta samning
Emma Fanndal Jónsdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Knattspyrnudeild Grindavíkur og mun leika með meistaraflokki kvenna næstu tvö keppnistímabil. Emma er 16 ára gömul og lék sitt fyrsta keppnistímabil sl. sumar með liði Grindavíkur sem fagnaði sigri í 2. deild kvenna. Emma er sóknarmaður og tók þátt í 9 leikjum með meistaraflokki Grindavíkur sl. sumar í deild og …
Cober og Anton Ingi þjálfarar Grindavíkur 2020 og mfl. kvenna í knattspyrnu lið Grindavíkur 2020
Knattspyrnuþjálfararnir Nihad Cober og Anton Ingi Rúnarsson voru í dag útnefndir þjálfarar Grindavíkur árið 2020. Þá var lið meistaraflokks kvenna í knattspyrnu valið lið Grindavíkur árið 2020. Bæði verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn í ár. Þeir Cober og Anton Ingi þjálfuðu lið UMFG í 5. flokki karla síðasta tímabil með undraverðum árangri. Liðið var Íslandsmeistari A-liða í 5. flokki …
Einhamar styrkir áfram knattspyrnudeild Grindavíkur
Sjávarútvegsfyrirtækið Einhamar og Knattspyrnudeild Grindavíkur skrifuðu í dag undir nýjan samstarfssamning til næstu tveggja ára. Einhamar hefur undanfarin ár staðið þétt að baki íþróttum í Grindavík og mun áfram styrkja við Knattspyrnudeild Grindavíkur líkt og undanfarin misseri. „Við erum svo heppin að eiga öfluga styrktaraðila sem standa þétt við bakið á okkur þrátt fyrir þá erfiðleika sem þjóðin er að …
Margrét Hulda framlengir samning sinn við Grindavík
Margrét Hulda Þorsteinsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Grindavík og mun leika með félaginu næstu tvö ár eða út tímabilið 2022. Margrét Hulda er 21 árs gömul og ólst upp hjá Keflavík. Hún hefur leikið með Grindavík undanfarin þrjú tímabil, leikið 37 leiki og skorað 5 mörk fyrir Grindavík. Margrét meiddist mjög illa tímabilið 2019 og var lengi frá …
Júlía Ruth gerir nýjan samning við Grindavík
Júlía Ruth Thaspahong hefur skrifað undir samning við Grindavík og mun leika áfram með félaginu næstu tvö keppnistímabil eða út tímabilið 2022. Júlía Ruth er 17 ára gömul og er uppalin hjá félaginu. Hún leikur sem kantmaður og hefur alls leikið 20 leiki fyrir Grindavík og skorað 2 mörk. Hún var í stóru hlutverki hjá liði Grindavíkur sem fagnaði sigri …
Tinna Hrönn semur til tveggja ára
Tinna Hrönn Einarsdóttir hefur gert sinn nýjan samning við Knattspyrnudeild Grindavíkur og mun leika með félaginu næstu tvö tímabil. Tinna er aðeins 16 ára gömul en hefur leikið alls 20 leiki með félaginu á tveimur tímabilum og skorað eitt mark. Tinna er mjög efnilegur leikmaður en varð fyrir því óláni að meiðast illa í sumar hún tók því aðeins þátt …