UMFG
Heim
þriðjudagur, 07 september 2010
 
 
Sumaræfingar á fullu
Höfundur Unglingaráð körfuknattleiksdeildar   
mánudagur, 21 júní 2010
Sumaræfingar eru enn í gangi hjá körfuknattleiksdeildinni.  Strákarnir hafa verið duglegir að mæta en Sveinn sem sér um æfingarnar saknar stúlknanna.  Þær eru hvattar til að mæta.  Æfingarnar eru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum frá 10:30 til 12:00.
Haukar Grindavík í kvöld
Höfundur Umsjónarmaður   
mánudagur, 21 júní 2010
Tvö neðstu liðin í Pepsi deild karla mætast í kvöld klukkan 20:00
Fyrir leikinn er Grindavík í neðsta sæti með 3 stig,  Haukar með 3 stig sömuleiðis en með betri markatölu.  Er því leikurinn mjög mikilvægur fyrir bæði lið, sannkallaður 6 stiga leikur.

Scott Ramsay og Grétar Hjartarson eru báðir að braggast og gætu e.t.v. spilað í kvöld ásamt Jóhanni Helgasyni sem tekið hefur út leikbann.

Liðin mættust í Lengjubikarnum í vetur þar sem Haukar fóru með sigur af hólmi, 2-1.  Annars hafa liðin ekki mæst í mörg ár og ef flett er upp í gagnagrunni KSÍ þá er aðeins 3 leikir skráðir milli þessara liða, leikurinn í vetur og svo tveir aðrir deildarbikarleikir 2003 og 2004 þar sem Grindavík sigraði í bæði skiptin.

Leikurinn verður sýndur í beinni á Stöð 2 sport en hinsvegar eru allir hvattir til að mæta á völlinn og styðja við bakið á strákunum.  Athugið að leikurinn fer fram á Vodafonevellinum að Hlíðarenda en ekki í Hafnarfirði.
Dagskrá 17.júní hátíðarhalda
Höfundur Umsjónarmaður   
miðvikudagur, 16 júní 2010
Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni.

Kl. 10:00 Hátíðarguðþjónusta í Grindavíkurkirkju.Ræðumaður: Bryndís Gunnlaugsdóttir,
forseti bæjarstjórnar.Fjallkona: Elínborg Ingvarsdóttir.Kór Grindavíkurkirkju syngur undir stjórn Kára Allanssonar.Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir predikar.Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari.Að lokinni guðþjónustu verður kaffisamsæti í safnaðarheimilinu í boði íþrótta-og æskulýðsnefndar.

Kl. 14:00 Karmelluregná Landsbankatúninu.

Kl. 14:15 Skrúðganga frá Landsbankatúninu að Grunnskóla Grindavíkur

Kl. 14:30 Skemmtidagskrávið grunnskólann. Kynnir er Víðir Guðmundsson leikari sem sprellar á milli atriða.

-Gosi kemur í heimsókn.
-Ingó töframaður sýnir töfrabrögð á heimsmælikvarða.
-Söngvakeppni yngstu kynslóðarinnar 14 ára og yngri. (Forkeppni verður haldin í Kvennó deginum áður, 16. júní. Hefst kl. 18:00. Skráning á staðnum.)
-Pálmar Guðmundsson trúbador tekur lagið.
-Viktor Gunnarsson og Guðbjörg Yuriko Ogino taka nokkur lög.-Fimleikasýning á vegum fimleikadeildar UMFG.-GRAL leikhópurinn.-Brúðubíllinn (kl. 17:00)

Á svæðinu verður einnig:
-Skemmtileg leiktæki á svæðinu fyrir alla krakka.
-Kassaklifur í umsjá unglingadeildarinnar Hafbjargar.
-Andlitsmálun fyrir alla hressa krakka.
-Körfubolti 3 á 3.
-Golfþrautir.
-Knattspyrnuþrautir.
-Arctic horses leyfa börnum að fara á hestbak.
Slysavarnardeildin Þórkatla verður með sölu á ýmsu góðgæti, blöðrum og fánum.

Söguratleikur Grindavíkur 2010:
Ratleikurinn er auðveldur og fróðlegur útivistarleikur. Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á ratleikskort eða vísað á þá.
Ratleikurinn tengist 80 ár sögu Slysavarnadeildarinnar sem var stofnuð 2. nóvember 1930. Ratleikurinn vísar á nokkra áþreifanlega minnisvarða. Fróðleikurinn byggir á Sögu Grindavíkur frá árinu 1994 sem Jón Þ. Þór tók saman, örnefnalýsingum og munnmælum fólks í Grindavík. Höfundur ratleiks Sigrún Jónsd. Franklín
Bókstafi og tölustafi á hverjum stað þarf að færa inn á lausnarblað og skila því í Saltfisksetrið eigi síðar en 25. júní. Ratleikskort og lausnarblað er hægt að nálgast í
Saltfisksetrinu.
Dregið verður úr réttum lausnum og það tilkynnt í Jónsmessugöngunni á Þorbirni 26. júní. Veglegir vinningar í boði:
1. Fjölskylduárskort í Bláa lónið og gjafabréf á veitingastaðnum LAVA á hádegisverðar hlaborð fyrir fjóra
2. Hellaskoðun fyrir tvo á vegum Eldfjallaferða
3. Sigling og veiði fyrir tvo á vegum Bryggjunnar, Miðgarði 2.
Vinsamlegast látið vita ef spjöld finnast ekki eða hafa verið færð úr stað í Saltfisksetrið s. 4201190.
Umsjón 17. júní hátíðarhaldanna: Knattspyrnudeild UMFG og íþrótta-og æskulýðsnefnd Grindavíkurbæjar.
Haukar 0 - Grindavík 1
Höfundur Umsjónarmaður   
miðvikudagur, 16 júní 2010
Grindavíkurstúlkur gerðu góða ferð í Hafnarfjörðinn í gær þegar þær mættu Haukum að Ásvöllum í Pepsi deild kvenna.
Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið því Haukar ætluðu að nota tækifærið og reyna rífa sig upp úr fallsæti en með sigri Grindavíkur gátu okkar stúlkur komist í þennan þétta pakka liða í 2-8 sæti.  Það tókst hjá Grindavík og eru þær nú komnar í 4 - 5. sæti með 11 stig.  Aðeins þrjú stig er í annað sæti en Valur virðist vera að stinga af enn eitt árið því þær eru efstar með 17 stig. 
Grindavík mætir einmitt Val í næstu umferð sem reyndar er ekki fyrr en undir lok mánaðarins vegna lands- og bikarleikja.

Aftur að leiknum en hann var frekar tíðindalítill.  Eins og markatalan sýnir þá er Grindavík með bestu vörnina í ár þar sem aðeins 4 mörk hafa komist þar í gegn.  Hakuar náðu ekki að skora í gær en mark Grindavíkur gerði Rachel Furness.

Myndir frá leiknum er hægt að sjá á sport.is

Haukar - Grindavík í kvöld
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 15 júní 2010
Grindavík sækir Hauka heim í kvöld á Ásvöllum í Hafnarfirði. 
Haukar hafa rætt um þennan leik í viðtölum upp á síðkastið sem þann leik sem þær verða að vinna og munu því væntanlega leggja allt sitt í hann til að rífa sig upp úr fallbaráttunni.
En Grindavíkurstelpurnar eru í toppformi þessa dagana og gerðu jafntefli við Breiðablik í síðustu umferð þar sem þær hafa náð í öll þrjú stigin og því er von á toppleik í kvöld sem enginn ætti að missa af.  Með sigri í kvöld geta stelpurnar nefnilega blandað sér í átökin á efri hluta deildarinnar og komist yfir Stjörnuna. 
Tvær úr Gríndavík í Norður-Írska landsliðinu
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 15 júní 2010
Íslenska A landslið kvenna mætir Norður-Írum á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag. Leikurinn er liður í undankeppni fyrir HM 2011.
Tveir leikmenn úr Grindavík munu þarna taka þátt en það eru þær stöllur Rachel Furness og Sarah McFadden.

Engin úr liði Grindavíkur var valin í íslenska landsliðið sem vekur nokkra furðu en Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir verður glæsilegur fulltrúi Grindavíkur eins og endranær.
Úrslit úr styrktarmóti kvennaliðs Grindavíkur
Höfundur Sigurður Enoksson   
þriðjudagur, 15 júní 2010
1. sæti Los Beatles (Guðjón Grétar Daníelsson og Jón Andri Finnsson) á 63 höggum
2. sæti Jóhann Freyr Einarsson og Agnar Már Gunnarsson á 64 höggum
3. sæti Ingvar Guðjónsson og Lárus Guðmundsson á 65 höggum.
      
 
Nándarverðlaun á 4 holu Frosti Eiðsson
Nándarverðlaun á 8 holu Ragnar David Riordan
Nándarverðlaun 13 holu Arnar Freyr Gunnarsson
 
Óheppnasta parið Jóhann Ólafsson og Vilhelm Jónsson
 
Mesti tuðarinn Guðmundur Valur Sigurðsson
 
Besta  Lúkkið Þar voru 4 sem voru í þessum flokk en  Sigurður Þór Birgisson fékk fyrstu verðlaun því hann var í bleiku. Hinir fengu þó sárabætur Bjarki Guðmundsson,Birgir Hermannsson
Og Sigurður Jónsson
 
Meistaraflokkur kvenna þakkar keppendum fyrir stuðninginn
Einnig þökkum við eftirtöldum fyrirtækjum fyrir frábæran stuðning:
 Hérastubbur Bakarí, Stakkavík,Ölgerðin,Vifilfell,Margt Smátt,Palóma,Nettó,Pizza Islandia,Olís,Mjólkursamsölunni og Bláa Lóninu . Án ykkar þá hefði þetta ekki verið hægt.
Einnig þökkum við Golfklúbbi Grindavíkur og starfsfólki(Bubbu) fyrir frábært samstarf á meðan á mótinu stóð
 
Myndir frá mótinu má sjá á igolf.is

Kær kveðja Fyrir hönd liðsins og kvennaráðs
Sigurður Enoksson          
Breiðablik 2 - Grindavík 3
Höfundur Umsjónarmaður   
mánudagur, 14 júní 2010

Loksins, loksins er keppnistímabilið hafið og 3 stig í hús á erfiðum útivelli.

Grindavík var án 3 lykilmanna því Grétar og Scotty eiga við meiðsli að stríða og Jóhann Helgason tók út leikbann.

Liðuppstillingin var því þannig:

Rúnar
Ray  Auðun  Orri  Jobbi
Jóhann A,  Matthías Markó  Alexander
Óli Baldur  Ondo

Sem sagt Markó og Orri höfðu stöðuskipti, Jóhann Aðalgeirsson á kantinn og Óli Baldur í framlínuna fyrir Grétar

Nánar...
Breiðablik - Grindavík í dag
Höfundur Umsjónarmaður   
mánudagur, 14 júní 2010
Grindavík sækir Breiðablik heim á Kópavogsvelli í kvöld, mánudag, kl. 19:15. Grindavík er án stiga eftir  6 leiki en Breiðablik í 3. sæti með 11 stig. Þetta verður fyrsti leikur Grindavíkur undir stjórn Ólafs Arnar Bjarnasonar.

Ekki verður annað sagt en hann taki við liðinu við erfiðar aðstæður. Það situr sem fastast á botninum og þá verður Grindavík án þriggja lykilmanna í kvöld. Jóhann Helgason er í leikbanni og þá eru Scott Ramsey og Grétar Hjartarson meiddir. Ramsey meiddist í bikarleik gegn Þór og hefur gengið erfiðlega að fá bót meina sinna og óvíst um framhaldið en hann fékk slæmt högg á lærið. Þá meiddist Grétar í baki í síðasta leik gegn ÍBV en talið en hann verði klár í næsta leik gegn Haukum. Jafnframt glíma fleiri leikmenn liðsins við meiðsli.
Golfmóti frestað
Höfundur Umsjónarmaður   
föstudagur, 11 júní 2010
Áður auglýstu styrktargolfmóti meistaraflokks kvenna sem átti að fara fram á morgun hefur verið frestað um einn dag vegna veðurs.  Mótið fer því fram á sunnudaginn
Sundmót Sjóarans síkáta
Höfundur Bjarni Már Svavarsson   
miðvikudagur, 09 júní 2010
Það var mikið fjör á sundmóti sjóarans síkáta sem haldið var í sundlaug Grindavíkur um sjómannahelgina, en mættu nokkur lið með sitt sterkasta lið og gekk mótið í alla staði vel.
Keppt var í blönduðum riðlum og voru því tímarnir sem náðust ekki löglegir til lágmarka þar sem drengir og stúlkur mega ekki keppa saman í sundi.
en myndir segja fleira en orð og er hægt að líta á nokkrar hérna

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 94 - 124 af 2405
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið