UMFG
Heim
ţriđjudagur, 07 september 2010
 
 
Jafntefli ađ Hlíđarenda
Höfundur Umsjónarmađur   
mánudagur, 09 ágúst 2010
Grindavík og Valur skildu jöfn í 15. umferð Pepsi deild karla í gærkveldi.  Hvorugu liðinu tókst að skora en Grindavík var betri aðilinn í leiknum og átti hættulegri færi.
Selfoss og Haukar töpuðu þannig að Grindavík færðist lengra frá botnsætinu en Fylkir sigraði einnig og því lengra í þá.

Í seinni umferð Pepsi deildar hefur Grindavík ekki tapað leik og er meira en mánður frá síðasta tapleik.  Einnig héldu þeir hreinu í annan leik í röð og er þetta því allt á uppleið.  Næsti leikur er settur á 19. ágúst en þá fáum við Íslandsmeistarana í heimsókn.

Umfjöllun fotbolti.net um leikinn
Lýsing frá leiknum á mbl.is
Umfjöllun visir.is á leiknum

Viðtal við Grétar Hjartarson
Viðtal við Ólaf Bjarnason
Viðtal við Jóhann Helgason
Karfan ađ fara af stađ
Höfundur Sibbi   
mánudagur, 09 ágúst 2010
Lítið hefur fréttst af grindvískum körfuknattleik að undanförnu enda er það kannski eðlilegt þar sem körfuboltafólk hefur verið í fríi.  En eftir verslunarmannahelgina byrjar undirbúningurinn venjulega af einhverri alvöru og því kominn tími á eitt stykki pistil.
Nánar...
Valur - Grindavík í kvöld
Höfundur Umsjónarmađur   
sunnudagur, 08 ágúst 2010
Stutt er á milli umferða núna í Pepsi deildinni því í kvöld mætir Grindavík Val á Vodafone vellinum klukkan 19:15. 

Grindavík kann vel við sig á Vodafone vellinum því í þeim tveimur leikjum sem liðið hefur spilað þar hafa þeir gert eitt jafntefli(við Val í fyrra) og einn sigur(gegn Haukum í sumar).

Valur er með 18 stig eftir 14 umferðir en Grindavík 12 stig og er leikurinn mikilvægur báðum liðum þar sem Grindavík reynir að koma sér fjarri botninum. Valur ætlar sér hinsvegar að fá þrjú stig til að blanda sér í baráttuna í efri hlutanum.

Grindavík 4 - Afturelding 1
Höfundur Umsjónarmađur   
laugardagur, 07 ágúst 2010
Grindavík mætti Aftureldingu í 13. umferð Pepsi deild kvenna.  Fyrir leikinn var Afturelding einu sæti fyrir ofan Grindavík en með sigri Grindavíkur gátu stelpurnar haft sætaskipti.   Og ekki byrjaði leikurinn vel því Afturelding komst yfir strax á 9. mínútu með marki frá Victoria Helen Charnley.
Grindavík var í fyrri hálfleik með nokkuð sterkan vind í fangið og náðu ekki að jafna.

En í seinni hálfleik snérist dæmið við og Rachel Furness var fljót að komast á blað með marki eftir nokkrar sekúndur.  Shaneka Gordon kom Grindavík yfir á 65. mínútu, Sara Hrund Helgadóttir 10 mínútum seinna og Anna Þórunn Guðmundsdóttir rak endahnútinn á leikinn með glæsilegu marki tveimur mínútum fyrir leikslok.

Grindavík er því komið í sjöunda sætið og mæta FH-stúlkum næst á þriðjudaginn í Kaplakrika.
Grindavík-Afturelding í kvöld
Höfundur Umsjónarmađur   
föstudagur, 06 ágúst 2010


Grindavík mætir Afturelding á Grindavíkurvelli klukkan 19:15 í kvöld.  Leikurinn er mikilvægur því liðin eru sjöunda og áttunda sæti og með sigri í kvöld geta stelpurnar fjarlægst botnbaráttunni.  Því er um að gera að mæta og hvetja þær.
Norđurlandamótiđ í Finnlandi
Höfundur Umsjónarmađur   
föstudagur, 06 ágúst 2010


Landslið Íslands í U-17 drengja tekur þessa dagana þátt í opnu-Norðurlandamóti í Finnlandi.
Fyrsti leikur Íslands var gegn Danmörku sem tapaðist 3-0 en Ísland sigraði heimamenn á miðvikudag 2-1 eftir að hafa verið 1-0 undir í hálfleik.
Síðasti leikur riðilsins er í dag þegar þeir mæta Englendingum. 

Grindavík á fulltrúa í þessu liði en það er Gunnar Þorsteinsson sem spilað hefur leikina sem vinstri bakvörður og jafnframt fyrirliði liðsins.
Viđtal viđ Ólaf eftir leikinn
Höfundur Umsjónarmađur   
föstudagur, 06 ágúst 2010
Hvernig finnst þér að vera kominn aftur á heimavöllinn eftir nokkur ár í atvinnumennskunni?
Það er bara gaman að spila.  Maður fer þá inn á völlinn sem leikmaður og einbeita sér að sjálfum sér en ekki að stressa sig yfir öllu öðru.

Hvernig er þá að blanda þessu saman að vera þjálfari og leikmaður?
Þetta tekur öðruvísi á.  Ég var orðinn dálítið stífur og þreyttur þarna undir lokin en þannig á þetta að vera, maður á verða þreyttur þegar maður spilar heilan leik þetta gamall.

Það var alveg eins búist við því að Grindavík mundi liggja aftur í þessum leik og fá andstæðingana til stýra leiknum?

Nei það var aldrei ætlunin. Þá á að reyna byggja upp ákveðin leikstíl sem við ætlum að spila á heimavelli sama hver andstæðingurinn er þar sem við verðum grimmir fram á við og aggressívir.
Þannig fáum við færin og þar sem við erum með hættulega menn þá reynum við að koma boltanum sem oftast á þá og sem fljótast. Þá erum við hættulegir.

Á að leggja sérstaka áherslu á heimavöllinn þar sem hann hefur ekki gefið mikið síðustu misseri?
Nei við erum bara að einbeita okkur að næsta leik.  Menn geta verið ánægðir í kvöld og á morgun undirbúum við okkur fyrir nýjan leik, þannig er það bara.

Þið hélduð hreinu í fyrsta skipti í langan tíma, ánægður með það?
Jú það er alltaf plús en það sem skiptir máli eru þessi þrjú stig og við erum mjög ánægðir með þau.

Mynd Hafliði Breiðfjörð-fotbolti.net

Önnur viðtöl eftir leikinn er hægt að sjá hér fyrir neðan
Viðtal við Ólaf hjá fotbolti.net
Viðtal við Þorvald hjá fotbolti.net
Viðtal við Auðun hjá fotbolti.net
Viðtal við Ólaf hjá mbl.is
Viðtal við Auðun hjá visir.is
Viðtal við Ívar hjá visir.is
Bein lýsing frá Grindavík - Fram
Höfundur Umsjónarmađur   
fimmtudagur, 05 ágúst 2010
Rétt í þessu lauk leik Grindavíkur og Fram í 14. umferð Pepsi deild karla.  Grindavík sigraði leikinn 3-0 í þrælgóðum leik þar sem Grindvíkingar hélt loksins hreinu og uppskar því kærkominn sigur.

Nánar...
Grindavík - Fram í kvöld
Höfundur Umsjónarmađur   
fimmtudagur, 05 ágúst 2010
Loksins er komið að leikdegi í Pepsi deild karla eftir 10 daga frí.  Leikur dagsins er Grindavík gegn Fram á Grindavíkurvelli í 14.umferð Pepsi deildar karla.

Nokkur stig og sæti eru á milli liðanna, Fram í fjórða sæti með 20 stig en Grindavík í tíunda með 9 stig.  Fyrri leikur liðanna í sumar fór 2-0 fyrir Fram en Grindavíkurliðið er nokkuð breytt síðan þá.

Liðin hafa mæst ansi oft síðustu ár eins og gefur að skilja þar sem bæði liðin hafa verið í efstu deild síðustu ár fyrir utan nokkrar undantekningar.

Ef teknir eru allir leikir liðanna frá 1995 þá eru það 33 leikir og nokkuð merkilegt að markatalan er 54-54.  Grindavík hefur unnið 15 af þessum leikjum, Fram þrisvar og fimm jafntefli.
Fram hefur að vísu haft yfirhöndina síðustu ár en henni verður snúið við í kvöld.

Á sama tíma mætast hin tvö liðin, Haukar og Selfoss, sem nefnd hafa verið í fallbaráttuslagnum en Grindavík ætlar sér að komast upp úr þeim slag og taka seinni hálfleik Íslandsmótsins með trompi. Tveir fyrstu leikirnir hafa endað með jafntefli og nú komið að sigri.
Dómari leiksins er Valgeir Valgeirsson
Nýr leikmađur:Dre Smith
Höfundur Umsjónarmađur   
fimmtudagur, 05 ágúst 2010
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur samið við Andre Smith sem er 25 ára bakvörður og hefur m.a. leikið hefur með George Mason háskólanum.

Á visir.is er fjallað um kappann en hann er mikil þriggja stiga skytta. 
Andre Smith, kallaður Dre, komst í sögubækurnar vorið 2008 þegar hann hitti úr öllum tíu þriggja stiga skotum sínum í leik með George Mason á móti James Madison en þrír menn höfðu áður mest hitt úr 9 þriggja stiga skotum í leik í bandarísku NCAA-deildinni án þess að klikka.

Það er alveg hægt að sjá fyrir sér slíka þriggja stiga skyttu falla vel að leik Grindvíkinga sem eru þekktir fyrir að skjóta aðeins fyrir utan þriggja stiga línuna að því er segir á Vísi.

„Stóra ástæðan fyrir því að ég tók hann fram yfir aðra er að ég þekki aðstoðarþjálfarann hjá George Mason háskólanum. Það er fyrrverandi liðsfélagi minn síðan að ég spilaði með honum í Belgíu. Hann gaf honum mjög gott orð," segir Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari Grindavíkurliðsins.


Dre Smith var með frábærar tölur með ABC Lions Dornbirn í B-deildinni í Austurríki í fyrravetur þar sem hann skorað 31,3 stig, gaf 7,0 stoðsendingar og stal 4,2 boltum í leik. „Hann spilaði í B-deildinni í Austurríki á síðasta tímabili en ég tók nú ekki mark á þeim tölum því ég veit ekki hversu marktækt það er," segir Helgi Jónas og bætir við:


„Hann á líka að vera mjög góður varnarmaður sem kemur sjaldnast fram á þessum myndböndum með leikmönnunum. Ég fékk það góðar upplýsingar frá aðstoðarþjálfaranum að ég ákvað að skella mér á hann," segir Helgi.


Það er nokkrum spurningum enn ósvarað með Grindavíkurliðið. Guðlaugur Eyjólfsson er ekki búinn að ákveða það hvort að hann verði með og Þorleifur Ólafsson er ekki enn orðinn góður af meiðslunum sem hömluðu hans þátttöku mikið á síðasta tímabili. „Við höfum bara misst leikmenn en ekkert bætt við okkur þannig lagað. Það kemur samt ekki til greina að vera spilandi þjálfari," segir Helgi Jónas og bætir við:


„Ég er alveg viss um að ég gæti spilað einhverjar mínútur en það kæmi bara niður á þjálfuninni."
Unglingalandsmót 2010
Höfundur Bjarni Már Svavarsson   
miđvikudagur, 04 ágúst 2010
Það var flottur hópur frá Grindavík sem mætti á Unglingalandsmótið en aldrei hafa fleiri farið frá Grindavík en keppendur voru 30 talsins en af þeim gistu um 20 á tjaldstæðinu og voru alls 77 keppendur og gestir á tjaldstæði Grindvíkinga. Og voru allir Grindvíkingum til sóma innan vallar sem utan.

Keppendur stóðu sig frábærlega og náðum við 2 liðum í fjögurra liða úrslit í flokki 13-14 ára í körfunni eldra liðið varð í 2 sæti en það yngra í 4 sæti.

Þeir keppendur frá Grindavík sem kepptu sem einstaklingar í körfunni komust allir í úrslit sem sýnir hvað við eigum marga efnilega körfuboltasnillinga. Sumir úr körfuboltaliðunum kepptu í Golfi Frjálsum og Knattspyrnu og stóðu sig vel.

Strákarnir sem kepptu í knattspyrnu urðu í 12 sæti en þar vakti einna helst athygli hinn ungi Viktor Hauksson sem stríddi oft strákum sem hann náði rétt svo uppí nafla.

Nánar...
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 32 - 62 af 2405
Samstarfsađilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið