Unglingadómaranámskeið hjá Grindavík verður haldið í Gulahúsinu miðvikudaginn 17. febrúar kl. 17:30. Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.
Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Námskeiðið er ókeypis.
Grindavík 94 Breiðablik 68
Höfundur Umsjónarmaður
þriðjudagur, 16 febrúar 2010
Grindavík er smá saman að skríða upp töfluna í Iceland Express deild karla. Eftir góðan sigur á Breiðablik í gær, 94-68, eru strákarnir í 3.sæti ásamt þremur öðrum liðum en með betra stigahlutfall. Grindavík er einnig á mestri siglingu með 4 sigurleiki í röð og þar er bikarinn ekki tekinn inn í myndina. En aftur að leiknum í gær. Fyrir leikinn var Breiðablik í næst neðsta sæti en það var ekki að sjá á leik liðsins í fyrri hálfleik. Hálfleikurinn var nokkuð jafn og voru gestirnir yfir eftir 12 mínútur. Í seinni hálfleik dró þó á milli liðana og endaði leikurinn með 26 stiga mun. Stigahæstir hjá Grindavík var Páll Axel með 21 stig, Ólafur og Darrel með 18 stig. Darrel var með flest fráköst, 11 stykki, og Brenton og Gulli báðir með 4 stoðsendingar.
Næsti leikur er svo sjálfur bikarúrslitaleikurinn sem fram fer á laugardaginn.
Ólafur Ólafsson skoraði glæsilega körfu í leiknum sem verður að teljast ein af þeim flottari í ár. Grindavík TV var að sjálfsögðu á staðnum og náði körfunni á myndband sem hægt er að sjá hér
Grindavík-Breiðablik
Höfundur Bensó
sunnudagur, 14 febrúar 2010
Strákarnir taka á móti Breiðablik í Röstinni klukkan 19.15 í kvöld
Leikurinn verður auðvitað sendur beint á Grindavík tv
Áfram Grindavík..!
Elínborg í A-landsliðshópinn
Höfundur Umsjónarmaður
mánudagur, 15 febrúar 2010
Eftir rétta viku leggur A-landslið kvenna í æfingarferð til Algarve. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt hvaða 20 leikmenn munu taka þar þátt í Algarve Cup þar sem spilað verður gegn Bandaríkjunum, Noregi og Svíþjóð.
Á meðal fimm nýliða er Elínborg Ingvarsdóttir, íþróttakona Grindavíkur 2009. Sjá hópinn á vef ksi.is
3. umferði í Íslandsmóti ( 5. og 6. bekkur kvenna)
Höfundur Atli og Gígja
sunnudagur, 14 febrúar 2010
Þriðja umferð 5. og 6. bekkjar kvenna í Íslandsmóti fór fram núna um helgina en stelpurnar fóru til Hveragerðis að þessu sinni. Stelpurnar stóðu sig gríðarlega vel og voru félaginu til sóma innan sem utan vallar.
Fyrsti leikurinn var gegn Keflavík b en leikir þessara liða hafa verið gríðarlega spennandi í vetur, en stelpurnar hafa unnið báða leikina með 2 og 9 stigum. Stelpurnar byrjuðu leikinn af krafti og voru að vinna 13 - 6 eftir tvo leikhluta og 21-8 eftir þrjá. Leikar jöfnuðust í 4 leikhluta og var 8 stiga munur áður en liðin fóru í seinasta leikhlutann. Stelpurnar okkar skoruðu fyrstu körfuna í seinasta leikhlutanum en síðan komu 10 sig Keflavíkur í röð og staðan orðin jöfn og 1 mínúta til leiksloka. Það var síðan Viktoría Líf sem kláraði leikinn fyrir okkur með 2-ja stiga skoti innan úr teignum. Góður sigur hjá stelpunum þó rúmur seinasti leikhlutinn hafi ekki verið vel leikinn.
Næstu tvær helgar mun Hópið iða af lífi þar sem meistaraflokkur kvenna í samstarfi við Grindina mun standa fyrir knattspyrnumóti fyrir yngri flokka kvenna. Fjöldi liða hefur boðað komu sína og má því búast við miklu fjöri og flottum töktum hjá fótboltastelpum framtíðarinnar.
4.flokkur spilar á einum velli á stórum mörkum þar sem Grindavík, Grótta, KR, Keflavík, Haukar, Reynir og Sindri keppa í tveimur riðlum.
6.flokkur mun hinsvegar spila á tveimur völlum í þremur deildum og eftirfarandi lið hafa boðað komum sína: Grindavík, Afturelding, Breiðablik, Skallagrímur, Grótta, FH, Keflavík, Þróttur, Reynir og Víðir
Um aðra helgi munu svo 5. og 7.flokkur taka þátt
Bjarni og Sveinn Ari í stjórn knattspyrnudeildarinnar
Höfundur Umsjónarmaður
föstudagur, 12 febrúar 2010
Aðalfundur knattspyrnudeildar Grindavíkur fyrir árið 2009 fór fram í gærkvöldi. Vel var mætt á fundinn. Meðal annars var lögð fyrir fundinn uppeldisáætlun deildarinnar, samþykkt var ályktun um mannvirkjamál og þá urðu tvær breytingar á stjórn deildarinnar. Sú breyting verður á þessu ári að meistaraflokkur kvenna, sem hefur verið samstarf Reynis og Víðis undir nafni GRV undanfarin þrjú ár, verður undir nafni Grindavíkur næsta sumar.
Tveir nýir komu inn í stjórn knattspyrnudeildar, þeir Bjarni Ólason og Sveinn Ari Guðjónsson. Þorsteinn Gunnarsson var endurkjörinn formaður og endurkjörnir stjórnarmenn voru Jónas K. Þórhallsson, Símon Alfreðsson, Ragnar Ragnarsson og Sigurður Halldórsson. Rekstur deildarinnar á síðasta ári var réttum megin við núllið.
Eysteinn Hauksson, yfirþjálfari yngri flokka Grindavíkur, kynnti uppeldisáætlun deildarinnar sem verður endurskoðuð hér eftir á hverju ári. Fram kom að hún er skrifuð frá grunni og á forsendum knattspyrnudeildar UMFG. Jafnframt var lögð fram yfirlýsing knattspyrnudeildar í málum jafnréttis kynja, kynþátta, fordóma og eineltis.
Þá samþykkti aðalfundurinn eftirfarandi ályktun: ,,Ályktun aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG, haldinn 11. febrúar 2010, vegna framtíðaruppbyggingar íþróttamannvirkja: Aðalfundurinn fagnar framtíðaráformum Grindavíkurbæjar um glæsilega uppbyggingu íþróttamannvirkja og að framtíðar búnings- og félagsaðstaða knattspyrnudeildar verði við Hópið og stúku aðalvallar. Þar sem rífa þarf Gula húsið þegar fyrsti áfangi íþróttamannvirkja verður byggður er ljóst að gríðarlega umfangsmikið félagsstarf knattspyrnudeildar verður á algjörum hrakhólum. Því er mikilvægt að ráðast sem fyrst í að reisa búnings- og félagsaðstöðu við Hópið og stúkuna. Minnt er á að endurgreiðsla virðisauka af vinnu við íþrótta- og skólamannvirki gildir út þetta ár. Knattspyrnudeildin er tilbúin til þess að gera samning við Grindavíkurbæ og taka að sér byggingu á búnings- og félagsaðstöðu ef það mætti verða til þess að flýta framkvæmdum."
Hamar 81 - Grindavík 104
Höfundur Umsjónarmaður
föstudagur, 12 febrúar 2010
Grindavík lagði Hamar 10-81 í gærkveldi. Leikurinn var liður í 16. umferð Iceland Express deild karla og eftir sigurinn í gær er Grindavík komið í 4.sæti með 22 stig. KR situr á toppnum með 26 stig og Keflavík og Stjarnan einum sigri frá KR.
Næsti leikur Grindavíkur er gegn Breiðablik 15. febrúar
Grindavík mætir Keflavík í úrslitum Reykjaneshallarmótsins
Höfundur Umsjónarmaður
föstudagur, 12 febrúar 2010
Grindavík sigraði Njarðvík í Reykjaneshallarmótinu í gærkvöldi með 3 mörkum gegn 1. Njarðvík komst yfir snemma leiks. Gilles Mbang Ondo jafnaði metin í upphafi seinni hálfleiks með marki úr vítaspyrnu og síðan skoruðu norðantröllin Matthías Örn Friðriksson og Jóhann Helgason sitt markið hvor. Grindvíkingar virkuðu afar þungir í þessum leik eftir stífar æfingar að undanförnu en inni á milli sáust góðir taktar. Grindavík og Keflavík mætast í úrslitum Reykjaneshallarmótsins. Úrslitaleikurinn fer fram klukkan 19:00 föstudaginn 19.febrúar.
Byrjunarliðið: Rúnar Ray – Auðun – Zoran – Alexander Orri – Scotty – Jóhann Óli Baldur – Sveinbjörn – Jósef
Inn á komu Óskar, Matthías Örn, Guðmundur Egill, Ondo, Gunnar Þ., Páll og Jóhann A
Tæknilegir örðugleikar
Höfundur Bensó
fimmtudagur, 11 febrúar 2010
Vegna tæknilegra vandamála getum við ekki sýnt leik Grindavíkur og Hamars í kvöld..
minnum á kki.is live statt
kveðja úr Blómabænum Bensó og Höddi
Uppfærð staða í getraunaleiknum
Höfundur Umsjónarmaður
fimmtudagur, 11 febrúar 2010
Staða efstu manna í getraunaleiknum breyttist í gærkveldi og eru núna Beggi, Valli og Dagbjartur efstir með 7 leiki rétta. Sjö koma fast á eftir þeim með 6 leiki rétta en sjá má stöðuna hérna