|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
föstudagur, 05 mars 2010 |
Um helgina fer fram stærsta körfuboltamót vetrarins, Nettó-mótið, sem haldið er í ár í 20. sinn. Mótið sem áður hét Samkaupsmótið fer fram í fjölda íþróttahúsa í Reykjanesbæ.
Grindavík sendir til þáttöku 15 lið drengja og stúlknaflokki á aldrinum 5-12 ára. Nánari upplýsingar um mótið |
|
|
Ray skrifar undir nýjan samning |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
föstudagur, 05 mars 2010 |
Ray Anthony Jónsson hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Grindavíkur
Ray, sem hefur spilað 127 leiki í efstu deild ásamt fjölda bikarleikja og nokkra Evrópuleikja (þar sem hann skoraði m.a. glæsilegt mark gegn FC Karnten í ágúst 2003), ætti eftir þessi 3 ár að vera sá leikmaður sem flesta leiki hefur spilað með Grindavíkurliðinu.
"Það kom ekkert annað til greina en að semja aftur við mitt lið. Er búinn að ræða við forráðamenn knattspyrnudeildarinnar um samninginn í nokkurn tíma en við flýttum okkur hægt í þeim efnum en ég er ánægður með niðurstöðuna" Ray hefur spilað flesta leiki sína sem bakvörður þó að hann hafi þótt skæðasti sóknarmaður liðsins í yngri flokkum, í síðustu leikjum í Lengjubikarnum hefur hann svo spilað í miðverðinum. Áttu von á að því að spila meira þar? "Nei ég býst ekki við því, Luka er bara að prófa okkur öðrum stöðum ef eitthvað kæmi upp á í leik og það þyrfti að breyta til" |
|
|
Mikilvægur sigur í gærkvöldi!! |
|
Höfundur Sibbi
|
|
föstudagur, 05 mars 2010 |
|
Eins og ég kom inn á í pistli mínum í gær þá var leikur gærkvöldsins á móti Keflvíkingum gríðarlega mikilvægur upp á framhaldið í deildinni og vannst flottur sigur, 76-72 og það þrátt fyrir að skorunarmaskínuna Pál Axel hafi vantað!l |
|
Nánar...
|
|
|
Grindavík-Keflavík í beinni |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
fimmtudagur, 04 mars 2010 |
Nú fer að hefjast leikur Grindavíkur og Keflavík í Iceland Express deildinni. Til að horfa á beina lýsingu frá leiknum smellið á sjónvarpið hér fyrir ofan. Það eru bræðurnir Sigurbjörn og Jón Gauti Dagbjartssynir sem lýsa í kvöld
|
|
|
Annar STTTÓÓÓRRR-leikur á morgun, fimmtudag!! |
|
Höfundur Sibbi
|
|
miðvikudagur, 03 mars 2010 |
|
Það má segja að allir leikir sem eftir eru í Deildarkeppninni séu stórleikir en leikur morgundagsins hjá okkar mönnum er kannski sérstaklega stór en þá koma nágrannar okkar úr Reykjanesbæ, n.t. Keflavík, í heimsókn og hefst leikurinn kl. 19:15. Það þarf ekkert að taka það fram að allir eru hvattir til að mæta á þennan leik og láta vel í sér heyra! |
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
miðvikudagur, 03 mars 2010 |
Körfuboltaunnendum er bent á skemmtilega youtube síðu, Leikbrot, þar sem sýnt er frá íslenskum körfubolta. Þar er t..d hægt að sjá brot úr leik Grindavíkur og Stjörnunnar í síðustu umferð og troðsla Ómars gegn KR nær inn á top10 í KR leikjum |
|
|
Grindavík mætir Haukum í umspili |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
miðvikudagur, 03 mars 2010 |
Í gærkveldi fór fram síðasti leikurinn í deildarkeppninni í Iceland Express deild kvenna. Grindavík mætti þá deildarmeisturum KR í leik þar sem mundi ráðast hvort stelpurnar þyrftu að spila umspilsleik eður ei.
Fyrsti leikhlutinn var jafn og skemmtilegur og leiddi Grindavík eftir hann. Í öðrum leikhluta tóku deildarmeistarnir völdin og héldu þeim til leiksloka þegar staðan var 45-66.
Michele DeVault og Jovana Lilja Stefánsdóttir voru stigahæstar með 11 stig.
Grindvík mæti því Haukum í umspili á laugardaginn 6.mars
Myndir af leiknum eftir Tomasz Kolodziejski
|
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
þriðjudagur, 02 mars 2010 |
 Smelltu á sjónvarpið hér til vinstri til að sjá beina lýsingu frá leik Grindavíkur og KR í Iceland Express deild kvenna |
|
|
Höfundur Guðrún Gunnarsdóttir
|
|
þriðjudagur, 02 mars 2010 |
 Tvær helgar í febrúar hélt meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu knattspyrnumót í Hópinu í fjáröflunarskyni. Laugardaginn 13. febrúar voru það 6. og 4. flokkur kvenna og sunnudaginn 22. febrúar voru það 7. og 5. flokkur kvenna. Fullt var á bæði mótin og viljum við þakka góðar viðtökur. Var þetta í fyrsta skipti sem slík mót eru haldin í Hópinu og ríkti almenn ánægja með útkomuna, bæði af hálfu mótshaldara og þáttakenda.
 Í 6. og 7. flokki fengu allir leikmenn þáttökuverðlaun en í 5. og 4. flokki voru það efstu 3 sætin sem hlutu medalíu og sigurliðið fékk bikar. Að lokum fengu allir pizzu og kók í Gulahúsinu sem Siggi bakari bjó til.
Grindin ehf var aðal styrktaraðili mótsins.
Fleiri myndir af mótinu er hægt að sjá með því að smella á "nánar" hér fyrir neðan |
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur Bensó
|
|
mánudagur, 01 mars 2010 |
|
Á morgun þriðjudaginn 2.mars taka Grindavíkurstúlkur á móti KR í síðasta leik í deild, en eftir þennan leik kemur í ljós hvort þær spili á móti Haukum eða Val/Njarðvík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Leikurinn hefst að venju klukkan 19.15 og ætlar Einhamar Seafood að bjóða öllum Grindvíkingum frítt á leikinn... Stelpurnar hafa tapað 4 leikjum núna í röð og veitir þeim því ekki af stuðning á móti deildarmeisturum KR... Áfram Grindavík Leikurinn verður einnig sendur á Grindavík tv...! |
|
|
Dósasöfnun hjá meistaraflokki |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
þriðjudagur, 02 mars 2010 |
|
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu er með dósasöfnun þriðjdaginn 2. mars en ágóðinn rennur í æfingaferð liðsins til Spánar fyrir páskana. Strákarnir biðja bæjarbúa að hugsa vel til þeirra með dósir þegar þeir banka upp á nk. þriðjudagskvöld. Strákarnir eru með ýmislegt fleira skemmtilegt í farvatninu til að safna eins og bón á bílum sem verður 19. og 20. mars, fótboltamót í Hópinu, getraunakvöld, Bibbakvöld, herrakvöld sem verður í apríl o.fl. |
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 249 - 279 af 2405 |