|
Grindavík - Njarðvík í dag |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
sunnudagur, 18 apríl 2010 |
Í dag klukkan 14:00 fer fram lokaleikurinn í riðli 1 í Lengjubikarnum. Þá mætast Grindavík og Njarðvík í Reykjaneshöllinni.
Þór sigraði ÍA í gær og Fjarðarbyggð Stjörnuna þannig að það er ljóst hvaða lið munu fara áfram í úrslitakeppnina en það eru Þór, Grindavík og ÍA. Þór situr í efsta sætinu en Grindavík getur tekið það með jafntefli eða sigri á eftir. |
|
|
Grindavík-ÍBV í Lengjubikarnum |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
laugardagur, 17 apríl 2010 |
Í dag mætast Grindvík og ÍBV í Lengjubikar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 12:00 og fer fram í Reykjaneshöll.
ÍBV er jafnt FH að stigum B deildinni með 6 stig en Grindavík kemur þar á eftir með 3 stig. Næstu leikur hjá stelpunum eru á fimmtudaginn klukkan 16:00 gegn Keflavík í Reykjaneshöll og svo lokaleikurinn 6 maí á Grindavíkurvelli klukkan 19:00 gegn Aftureldingu |
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
föstudagur, 16 apríl 2010 |
 Gilles Ondo í leik Grindavíkur og Fylkis í fyrra
Grindavík komst á topp riðils 1 í Lengubikarnum í gær eftir 0-0 jafntefli við Fylki í gærkveldi. Orri og Jóhann eiga við lítilsháttar meiðsli og var því nýtt par á miðjunni, Matthías og Alexander, sem báðir komu til liðs við Grindavíkur í haust. Annars var byrjunarliðið þannig skipað:
Rúnar Guðmundur Egill Auðun Markó Jósef Ray Matthías Alexander Óli Baldur Scotty Ondo
Leikurinn byrjaði vel og var nokku mikill hraði á fyrstu 10 mínútunum. Fylkir var nálægt því að komast yfir þegar leikmaður þeirra var óvaldaður í vítateig eftir hornspyrnu. Næsta korterið var Fylkir betri aðilinn í leiknum og líklegri að skora. Vörnin hélt þó vel og eina skipti(á 16 mín) sem þeir komust inn fyrir kom Rúnar vel út á móti og hirti boltann af fótum leikmannsins. Á 36 mínútu átti Jobbi góðan sprett upp kantinn og gaf fyrir á Ondo sem skallaði framhjá.
Markalaust var því í hálfleik. Gunnar kom inn á fyrir Jobba í byrjun seinni hálfleiks en áður hafði Sveinbjörn komið inn fyrir Markó. Aðrar skiptingar í seinni hálfleik var þegar Páll kom inn fyrir Scotty og Grétar fyrir Óla Baldur. Annars var seinni hálfleikurinn frekar daufur og lítið um marktækifæri. Óli Baldur átti fast og lúmskt skot á markið sem Fjalar, markvörður Fylkis, varði. Eftir skotið bað Óli Baldur um skiptingu en lasleiki eða meiðsli virtist hrjá hann í leiknum þar sem hann var nokkuð ólíkur sjálfum sér.
Grindavík hélt þó hreinu annan leikinn í röð og hefur fengið á sig 7 mörk í leikjunum 6. Aðeins Valur, FH og KR hafa fengið færri mörk á sig í A deild Lengjubikarsins þar sem 24 lið taka þátt. Má því þakka að í ár eigum við tvo góða markmenn sem munu berjast um sætið í byrjunarliðinu í sumar. Auðun hefur smell passað í öftustu röð og er mjög leiðbeinandi fyrir alla í kringum sig. Markó, Ondo yngri og fleiri sem hafa spilað í hafsentinum hafa einnig staðið sig vel og ekki má gleyma bakvörðunum. Við eigum einfaldlega besta vinstri bakvörð landsins, Jobba, og hægri bakvarðarstaðan er einnig vel mönnuð af Alexander og Guðmundi Agli sem stóð sig einstaklega vel í gær og síðast en ekki síst Ray sem hefur reyndar spilað meira upp á kanti í vor.
Lokaleikur í riðlinum er á sunnudaginn gegn Njarðvík í Reykjaneshöll þar sem Grindavík þarf stig til að tryggja sig í úrslitakeppni Lengjubikarsins. Mörgum finnst það e.t.v. léttvægt að ná langt í þessum bikar en með því að komast áfram fá strákarnir fleiri æfingarleiki sem skipta einhverju máli og það inn í knattspyrnuhöllum við bestu aðstæður í stað þess að þurfa að leigja sér tíma eða spila við misjafnar veðuraðstæður.
|
|
|
Búið að draga í happdrætti |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
fimmtudagur, 15 apríl 2010 |
Meistaraflokkur karla stóð fyrir happdrætti sem var liður í fjáröflun þeirra fyrir æfingarferð sem farinn var til Spánar á dögunum.
Í gær var dregið úr pottinum og voru 15 vinningar í boði.
| | Vinningur
| Vinningsnúmer
| #1
| 32" flatskjár frá HT
| 115
| #2
| Flug og gisting á Akureyri
| 474
| #3
| Ferðavinningur frá ÚÚ
| 154
| #4
| Sumarkort í Bláa lónið
| 350
| #5
| Vetrarkort í Bláa lónið
| 434
| #6
| Ársmiði á Grindavíkurvöll
| 394
| #7
| Saltfisks askja
| 248
| #8
| Úttekt í Sportlandi
| 516
| #9
| Ársmiði á Grindavíkurvöll
| 179
| #10
| Úttekt í Bónus
| 574
| #11
| Úttekt í Sportlandi
| 196
| #12
| Sumarkort hjá Golfklúbbi Grindavíkur
| 495
| #13
| 10.000 kr úttekt hjá Skeljungi
| 277
| #14
| 1 miði á herrakvöld knattspyrnudeildar
| 306
| #15
| Grindavíkurgalli (stærð 156 )
| 157
|
|
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
fimmtudagur, 15 apríl 2010 |
Næst síðasti leikur Grindavíkur í riðlakeppni Lengjubikarsins fer fram í kvöld. Þá mæta þeir Fylki í Egilshöll og hefst leikurinn klukkan 21:00
Með sigri í kvöld tryggja þeir sér áfram í úrslitin og komast jafnframt á toppinn. Því fyrir leikinn er ÍA með 13 stig eftir 6 leikir, Grindavík með 12 stig eftir 5 leiki. Þór og Stjarnan eru með 10 stig eftir 6 leiki og eiga enn möguleika.
Lokaleikur í riðlakeppninni er gegn Njarðvík á sunnudaginn. |
|
|
Æfingarferð meistaraflokks kvenna |
|
Höfundur Petra Rós
|
|
miðvikudagur, 14 apríl 2010 |
 Þá er skemmtilegri æfingaferð meistaraflokksstúlkna lokið. Lentum við í Keflavík í gærkvöldi, mánudagskvöld eftir að hafa eytt skemmtilegri viku saman í Oliva Nova á Spáni. Taldi ég 11 æfingar og 2 leiki á þessari viku auk funda og hópeflisæfinga. Svo nóg var tekið á. Hristir svona ferð hópinn mjög vel saman og er frábært að geta æft við bestu aðstæður þegar svona stutt er í tímabil, en í dag er nákvæmlega mánuður í okkar fyrst leik í Íslandsmótinu. Á einum fundinum völdum við okkur fyrirliða fyrir tímabilið með kosningu þar sem allir leikmenn, þjálfarar og liðsstjóri kusu af kjörseðli í leynilegri kosningu. Var niðurstaðan að Anna Þórunn Guðmundsdóttir verður okkar fyrirliði og Þórkatla Albertsdóttir vara fyrirliði. Flott “teymi” þar á ferð. Norður Írinn Sarah McFadden kom til móts við hópinn í Alicante í upphafi ferðar og kom með okkur svo heim til Íslands. En hún ætlar að spila með okkur annað tímabilið í röð. Gleðilegar þær fréttir enda sterkur leikmaður þar á ferð. Svo það eru bara bjartir tímar framundan hjá hópnum og verður nú unnið vel fram að móti. Enn og aftur viljum við svo þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur að gera þessa ferð að veruleika. Kveðja Petra Rós fararstjóri |
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
laugardagur, 10 apríl 2010 |
Grindavík lagði ÍA í toppslag 1 .riðilsins í Lengjubikarnum í dag 2-0. Skagamenn hafa verið á góðri siglingu í deildarbikarnum en í dag mættu þeir ofjörlum sínum. Mörk Grindavíkur koma bæði úr föstum leikatriðum, það fyrra eftir hornspynu og seinna markið eftir aukaspyrnu. Byrjunarliðið þannig skipað:
Óskar Alexander Auðun Markó Jósef Matthías Ray Orri Jóhann Óli Baldur Scotty
Auðun fékk högg og all myndarlega kúlu í fyrri hálfleik og þurfti að fara af velli. Páll kom inn á fyrir hann en Matthías færði sig aftar á völlinn. Á 14 mínútu átti Orri skot í slánna sem Óli Baldur fylgdi vel eftir en dómarar leiksins sáu boltann ekki fara inn fyrir línuna. Það var því markalaust þangað til 5 mínútum fyrir leikhlé að Scotty átti gott skot sem markvörður ÍA varði í horn.
Scotty spyrnti boltanum úr horninu beint á höfuðið á Matthíasi sem kom
okkar mönnum yfir.
Lítið annað gerðist markvert í fyrri hálfleiknum. Seinni hálfleikurinn var örlítið fjörugri. Grétar kom inn þegar 25 mínútur voru eftir á leiknum og komst strax í gott samband við leikinn. Ray sem var að spila á kantinum í dag átti sérstaklega góða spretti með Grétari en í fyrstu sókn Grétars í leiknum átti Ray sendingu inn fyrir teiginn þar sem nokkuð ryðgaðar lappir Grétars brugðust honum í skotinu.
En þær brugðust honum ekki í seinna marki Grindavíkur. Þá var brotið á Scotty á miðjum velli. Scotty tók aukaspyrnuna sjálfur sem var mjög flottur bolti inn í teig. Ray kom þar askvaðandi og stökk manna hæst og skallaði boltann á Grétar sem klippti hann í loftinu og í mark.
Undir lokinn komu Guðmundur Egill, Gunnar og Emil Daði inn á. Voru þá inn á vellinum 8 uppaldir leikmenn úr Grindavík og allir(fyrir utan Ray) um eða undir tvítugt.
Grindavík er því komið upp að hlið ÍA með 12 stig (ÍA með 13) og Grindavík á leik til góða. Sá leikur er einmitt á fimmtudaginn í Egilshöll þegar þeir mæta Fylki. Lokaleikurinn í riðlinum er eftir viku þegar þeir mæta Njarðvík í Reykjaneshöllinni. |
|
|
Friðrik hættir með Grindavík |
|
Höfundur Sibbi
|
|
fimmtudagur, 08 apríl 2010 |
|
|
|
Nánar...
|
|
|
Grindavík-ÍA á laugardaginn |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
fimmtudagur, 08 apríl 2010 |
Grindavík mætir ÍA í Lengjubikar karla á laugardaginn kl. 16:00 í Reykjaneshöllinni. ÍA hefur farið hamförum í Lengjubikarnum og er í efsta sæti riðilsins. Ekki bætir úr skák hjá Grindavík að framherjinn Gilles Mbang Ondo, sem hefur skorað 7 mörk í 4 leikjum liðsins, er í leikbanni og því fjarri góðu gamni. Grindavík er sem stendur í 3. sæti riðilsins en tvö efstu liðin komast í átta liða úrslit.
Staðan er þessi: 1. ÍA 13 2. Haukar 10 3. Grindavík 9 4. Þór 7 5. Stjarnan 7 6. Fylkir 5 7. Fjarðabyggð 3 8. Njarðvík 2 |
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
fimmtudagur, 08 apríl 2010 |
Meistaraflokkur kvenna er í æfingarferð á Spáni þessa dagana til að undirbúa sig fyrir komandi tímabil. Hluti af æfingunni eru æfingaleikir bæði við heimamenn og önnur íslensk lið. Í gær mættu stelpurnar liði frá Spáni og sigruðu leikinn örugglega 6-0.
Á morgun má hinsvegar búast við meiri mótspyrnu þegar þær mæta Valsstúlkum. |
|
|
Ondo og Ondo í landsliðshópum Gabon |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
miðvikudagur, 07 apríl 2010 |
Bræðurnir Gilles Mbang Ondo og Loic Ondo hafa verið kallaðir á æfingar með landsliðum Gabon. Ondo mun æfa með A landsliðinu í lok apríl en Loic með U-21 landsliðinu í undankeppninni fyrir Afríkumótið.
Í viðtali á fótbolti.net er Gilles ánægður með að nýr landsliðsþjálfari, Gernot Rohr, hafi valið sig "Þetta gæti verið góður möguleiki fyrir mig fyrir framtíðina og ég gæti náð sæti í liðinu fyrir Afríkumótið 2012 en það mót er í Gabon. Ég legg hart að mér á hverjum degi til að láta þennan draum rætast." |
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 187 - 217 af 2405 |