UMFG
Heim
þriðjudagur, 07 september 2010
 
 
Elínborg valdi boltann fram yfir útskrift
Höfundur Umsjónarmaður   
miðvikudagur, 26 maí 2010


Elínborg Ingvarsdóttir, íþróttakona Grindavíkur 2009, útskrifaðist sem stúdent á laugardaginn.  Í stað hárra hæla í útskriftinni reimdi Elinborg á sig takkaskóna og tók þátt í leiknum gegn KR sem þær unnu 1-0.

Útskriftarmyndin var því tekin á vellinum í faðmi liðsfélagana sem kunnu að meta fornfýsi hennar.
Grindavík 1 - Valur 2
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 25 maí 2010
Ekki náðust inn stig í kvöld hjá Grindavík þegar þeir mættu Val á Grindavíkurvelli.
Nokkrar breytingar voru gerðar á liðinu frá tapleiknum gegn Fram.
Rúnar tók við markmannsstöðunni, Auðun og Grétar byrjuðu og Ray og Alexander á bekknum.

Í vörn voru Luic, Auðun, Markó og Jobbi
Matthías, Orri og Jóhann á miðjunni.
Ondo, Grétar og Scotty frammi.

Fyrri hálfleikurinn var tíðindalítill.  Líkt og í fyrri leikjum liðsins var spilað mjög varlega fyrstu 20 mínúturnar
og voru gestirnir meira með boltann á þeim tíma.  En eftir þessar 20 mínútur komust okkar menn meira í takt við leikinn.
Á 33. mínútu fór Jósef meiddur af velli en hnéð er að hrjá hann, Alexander kom inn í hans stað.
Rúnar Sigurjónsson(þó ekki málarinn) var nálægt því að koma Val yfir á 38. mínútu en skot hans fór í hliðarnetið.
Markalaust var því eftir 45 mínútur.
Nánar...
Lýsing frá Grindavík-Valur
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 25 maí 2010
Innan skamms hefst leikur Grindavíkur og Vals í 4.umferð Pepsi deild karla. 

Í stað beinnar textalýsingar eins og hefur verið á leikjum síðustu árin mun ljósmyndari frá umfg.is verða á staðnum og taka myndir af leiknum og umgjörð hans. 
Hægt verður að skoða myndirnar hér um leið og þær verða teknar.

mbl.is, visir.is og fotbolti.net verða með mann á staðnum og verður hægt að fylgjast með textalýsingum þeirra með að smella á viðkomandi tengla.



Grindavík - Valur í kvöld
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 25 maí 2010
Fjórða umferð Pepsi deild karla lýkur í dag með þremur leikjum, Selfoss-Stjarnan, KR - Keflavík og svo Grindavík gegn Val sem fram fer hér í Grindavík.

Bæði liðin hafa spilað undir getur í upphafi móts og ætla því bæði að nota þennan leik til að rífa sig upp.  Með góðum leik og góðum stuðningi mun takast að landa fyrstu stigum Grindavíkur í sumar.

Fyrir leikinn munu frambjóðendur til sveitastjórnakosningar taka höndum saman og grilla fyrir alla þá sem ætla að fara á leikinn og verður grillið heitt frá klukkan 17:00
Blómasala 5. og 6. flokks
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 25 maí 2010
Hin árlega blómasala fótboltastrákana í 5. og 6. flokk drengja verður í Festi 25.-27. maí.

Opið verður á þriðjudeginum frá kl. 17-21 og miðvikudag til fimmtudags frá 15-21
Grindavík 1- KR 0
Höfundur Umsjónarmaður   
sunnudagur, 23 maí 2010
Grindavík er komið í 6. sæti í Pepsi deild kvenna eftir sigur á KR í gær.   Eina mark leiksins kom á 26. mínútu þegar brotið var á Sarah McFadden inn í teig og tók hún vítið sjálf.  Í seinni hálfleik skoraði Grindavík annað mark en var það dæmt af.
Byrjunin á tímabilinu lofar því góðu og nú er bara að halda þessu áfram.

Næsti leikur hjá stelpunum er gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ klukkan 19:15 næstkomandi fimmtudag.
Vel heppnuð uppskeruhátíð
Höfundur Atli Geir Juliusson   
laugardagur, 22 maí 2010

Uppskeruhátíð yngri flokka var haldin miðvikudaginn 12. maí sl.  Vel mætt var á hátíðina og var mjög ánægjulegt að sjá marga foreldra á staðnum.  Þjálfarar fóru yfir árangur vetrarins og verðlaunuðu leikmenn sem höfðu skarað framúr.  Eftir dagskrána fengu hátíðargestir miklar kræsingar í boði foreldra og Pepsi og sódavatn í Ölgerðarinnar.
Nánar...
Grindavík - KR á morgun
Höfundur Umsjónarmaður   
föstudagur, 21 maí 2010
Meistaraflokkur kvenna mætir KR á Grindavíkurvelli á morgun klukkan 15:00.  Er leikurinn liður í 3.umferð Pepsi deild kvenna. 
Grindavík hefur byrjað ágætlega, gerðu jafntefli við Þór/KA í fyrstu umferðinni og voru óheppnar á ná ekki í stig gegn Stjörnunni.

KR hefur hinsvegar unnið báða sína leiki en gegn mótherjum sem ekki er spáð góðu gengi í sumar.
Þetta gæti því verið hörkuleikur, veðurspáin er fín og því um að gera að skella sér á völlinn.
Dregið í 32. liða úrslitum
Höfundur Umsjónarmaður   
föstudagur, 21 maí 2010
Í dag var dregið í 32. liða úrslitum Visa bikars karla.  Grindavík fór ofan í pottinn ásamt öðrum efstu deildar liðum og fór það þannig að Grindavík mun mæta Þór í Grindavík.  Leikurinn fer fram annaðhvort 2. eða 3. júní þannig að það verða 3 leikir hjá meistaraflokks karla þessa viku því þeir mæta FH í Kaplakrika á mánudeginum og ÍBV(sem hluti af Sjóaranum Síkáta) á laugardeginum.

Og já það var líka leikur í gær þar sem Fram sigraði 2-0.
Hittingur hjá Stinningskalda
Höfundur Umsjónarmaður   
fimmtudagur, 20 maí 2010
Stuðningsmannaklúbburinn Stinningskaldi mun hittast á Bryggjunni (á 3. hæð) klukkan 17:00 og hita upp fyrir leikinn í kvöld.   Þorsteinn hjá Salty Tours mun keyra hópinn í bæinn og kostar farið 1.500 kr(miði á leikinn innifalið)
Formannskipti hjá Ungmennafélaginu
Höfundur Umsjónarmaður   
fimmtudagur, 20 maí 2010
Í gærkveldi fór fram aðalfundur Ungmennafélags Grindavíkur.  Tíðindi kvöldsins var að Gunnlaugur Hreinsson hefur ákveðið að stíga niður sem formaður eftir 15 ára setu.  Við keflinu tekur Bjarni Már Svavarsson. 

Gunnlaugur er þó ekki hættur alveg störfum fyrir UMFG því hann situr áfram í stjórninni sem gjaldkeri. Stjórnarmönnum UMFG var fækkað úr 7 í 5.
Í stjórninni auk Bjarna og Gunnlaugs eru Gunnar Jóhannesson varaformaður, Ingvar Guðjónsson ritari og Sigurður Enoksson meðstjórnandi.

Bjarni sagði að fram undan séu ýmis verkefni sem gaman verði að takast á við og þess vegna hefði hann ákveðið að bjóða fram starfskrafta sína. Sagðist hann vonast til þess að eiga gott samstarf við íþróttahreyfinguna í Grindavík.

Bjarni hefur sjálfur komið víða við í íþróttunum og varð m.a. Íslandsmeistari í götuhjólreiðum auk þess sem hann hefur komið nálægt júdó og hlaupum. Undanfarin ár hefur hann starfað töluvert fyrir sunddeild UMFG og setið í aðalstjórn UMFG.

Á aðalfundi UMFG voru samþykktar reglugerðir um forvarnarsjóð, heiðursmerkjanefnd auk þess sem smávægilegar orðalagsbreytingar voru gerðar á lögum UMFG.
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 125 - 155 af 2405
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið